Hugleiðing
Ég og Búbba frænka fórum á leiðið hennar langömmu á föstudaginn og kveiktum kertaljós.
Það er í Fossvogskirkjugarði og er voðalega lítið og sætt.
Líkið hennar langömmu var nefnilega brennt og askan sett í fallegt ker.
Grafreiturinn er því pínkuponsu lítill miðað við stærðar leiðin þeirra sem grafnir eru í líkkistum.
Ekkert á móti þeim neitt.
Er voða mikið að spá núna hvort að ég eigi að láta brenna mig þegar ég dey, hvenær sem það verður.
Gæti gerst á morgun, gæti gerst eftir 60 ár.
Er fyrir löngu búin að ákveða það að ef að ég er heil á líkama og hægt að nýta helstu líffærin mín til líffæragjafa þá vill ég að þeir sem þarfnist þeirra fái þau.
Mamma, pabbi og helstu vinir vita þetta. Vonandi verður það virt.
Því ég meina ekki þarf maður á þeim að halda.
Öll líkamsstarfsemi hætt og líkaminn ekki nýttur í næsta lífi.
Þá væri svo sem kannski bara sniðugast að láta svo brenna rest....æii hef einhvern veginn alltaf hryllt mig við því að vera sett í kistu lengst ofan í jörð...þrátt fyrir að vera steindauð að sjálfsögðu get ég alls ekki sætt mig við tilhugsunina.
Kemur kannski með aldrinum. Held samt ekki.
Þið haldið kannski að ég sé að bilast...en það er bara ekkert svo vitlaust að ákveða svona hluti.
Vera með þetta allt á hreinu þegar að því kemur.
Miklu auðveldara að foreldrar eða aðrir aðstandendur viti vilja manns en að þeir sjálfir þurfi á sorgarstundu að taka ákvarðanir um slík mál.
Allavega vill ég fara koma þessu á hreint. Líka lagalista...
Hvað ætlið þið að gera?
P.S. Vonandi dey ég ekki úr fuglaveiki. Vill þá frekar deyja úr krabbameini eða alnæmi.

4 Comments:
Elsku Sunna mín ég skil þig hartanlega vel, ég hef mikið pælt í þessu líka og mér finnst að þegar maður er látinn þá er líkaminn bara hylki, sálin er horfin á braut, þannig að ég vil endilega nýta það sem nýta má og svo vil ég láta brenna mig. Er samt ekki enn komin með lagalista.
Ja langamma og langafi minn létu bæði brenna sig og eru þarna í Fossvoginum saman í reit, voðalega lítið og fallegt.
Ég er á sömu skoðun og þú, mér líst ekkert á að vera ofan í kistu lengst ofan í jörðunni og roxxx.... :s. Meina eins og sagt er..."við komum öll af mold og að mold skulum við aftur verða"... Þá er alveg eins hægt að flýta þessu ferli aðeins og verða bara að ösku. Mér finnst ekkert að því, plús það, þetta sparar helling af landinu okkar.
p.s ertu búin að kíkja á www.gardur.is, fróðlegt um þetta þar...
Já það er sniðugt að skrá sig þarna á gardur.is ef að maður hefur ákveðið bálför.
Fimmti hver Íslendingur lætur brenna sig sem er ívið meira en ég hélt. En gott mál...sparar einmitt pláss :)
Einsog þeir segja er fyrirhyggja skynsamleg í þessum málum!
Góð síða!
Já ég er einmitt með svoleiðis kort... Líka mikilvægt að þeir sem standa manni næst viti hvað maður vill.
Skrifa ummæli
<< Home