.comment-link {margin-left:.6em;}

Sunna Sweet

6.9.05

Flottasta Fertugsafmælið!

Já það má segja að nýliðin helgi hafi verið viðburðarrík hjá SunnuSweet.
Mikið um flutninga og klessubíló á föstudaginn...jámm þurfti endilega að keyra aftan á fatlaða konu með tvo hunda í skottinu.
Á bílnum hans Pabba. Jibbí Jei!
Engin líkamleg meiðsli svosem en held að andlegt áfall hafi verið óumflýjanlegt þarsem að þetta var í annað skiptið á um mánuði sem að stúlkan klessir bíl forráðamanna sinna.
Og í órétti!! Já já geri aðrir betur.
Annars er fullt af fólki sem er alltaf að klessa á...ég er örugglega ekki ein.
Bara að bæta upp fyrir mína ótrúlegu aksturshæfileika ;)
Sem dæmi um aðra þá var ég að horfa á Evu Mendez í Jay Leno í gær þar sem að hún viðurkenndi í beinni að hafa bakkað bílnum útúr skúrnum án þess að opna hurðina...mehehe...ef ég geri það einhvern tímann vona ég að ég verði á eigin bíl í eigin bílskúr.

Til að bæta og kæta skap okkar, fórum við Guddy á gott djamm&djús.
Við þurftum náttúrulega að losa um spennuna er myndaðist við árekstrana.
Ótrúlegt en satt þá hafði nefnilega Guðrún bakkað á fyrr um daginn...muhahaha....með eindæmum samrýmdar vinkonur.
Gátum hresst hvora aðra við með frösunum, ,,Fall er fararheill" og ,,Batnandi mönnum er best að lifa".
Vonandi!
Við dilluðum bossunum í takt við góða tóna á Kaffibarnum.
Ölvun var þokkaleg en þó engir skandalar. Minnir mig.

Þegar ég vaknaði skjálfandi, rauðeygð og með massífan hausverk á laugardagsmorgni var alls ekki fremst í huga mér að fara í sólarhrings-afmælis-óvissuferð hjá fertugri móðursystur minni.
ONEI!
En þar sem að þynnku-afsökunin var alls ekki í boði kom ekkert annað til greina en að drattast á fætur, sturta sig og sjæna og koma sér út í sólina.
Ég sá ekki eftir því.
Veðrið var meiriháttar og getiði nú hvað....þetta reyndist verða hinn besti þynnkudagur ever.
3 tímar í Mecca Spa...aha aha...við fengum allar nudd...svömluðum í lauginni...sátum í pottinum með freyðivín (er reyndar ekki mikil freyðivínsmanneskja. Vill Kampavín!) og jarðaber.
Þvílíkt dekurdúllerí. Love it!
Það má hver sem er bjóða mér í svona afmæli :)
Eftir "spa-treatment" var haldið uppí Hvalfjörð í bústað einn að Bjarteyjarsandi.
Skálað var allt kvöldið með Mojitos og öðru áfengi, að hætti alvöru kvenna.
Nóg var af góðum mat enda ekki annað þekkt hjá HeiðuHotlips (afmælisbarnið)
SunnaSweet var ekki jafn úthaldsgóð og hinar kellurnar sem að skemmtu sér langt fram eftir nóttu.
Ég var komin í koju um eittleytið....zzzZZZzzzz...sybbin eftir allt dekrið.

Vaknaði fersk á Sunnu-daginn við jarm og traktorshljóð.
Fór í pottinn og naut kyrrðarinnar og stórbrotna útsýnisins.
Hellti uppá kaffi og hitaði rúnnstykki fyrir þunna fólkið....svo brunaði ég og mútta í bæinn þar sem planið var að fara með Egil Darra á leikritið Klaufa&Kóngsdætur í þjóðleikhúsið en því miður féll leiksýningin niður vegna veikinda.
Ég og Darralingur tókum bæjarrúnt í staðinn í Hallgrímskirkjuturn...Perluna...Iðu kaffihús og tjörnina...skjannasól og fínt.

Annars er ég nokkurn veginn flutt..ennþá allt í drasli :( sem pirrar mig ekkert lítið.
Skólinn er byrjaður og mér líst mjög vel á fögin.....stundataflan er mjög Sunnu-væn :)
Er í eitthvað svo skrýtnu skapi ....kveð ykkur bara að svo stöddu...
Keyrið nú varlega elskurnar..... ;)

2 Comments:

At 10:01 f.h., september 09, 2005, Anonymous Nafnlaus said...

Usss usss usss arekstrar og fylleri, thad er thad eina sem thetta unga folk i dag kann!

Daman

 
At 2:11 e.h., september 09, 2005, Blogger sunnasweet said...

Jáhá...og ég er meira segja helvíti góð í því...enda verður rokkað í reykjavík á morgun...vúhú...allt að gerast...partízone!
Ég er bara dama svona spari! Heh

 

Skrifa ummæli

<< Home