ammi & afa (amma og afi)
Nýjasta æðið hjá mér þessa dagana er að fá mér ísskalt vatn og setja ferska myntu útí..umm namminamm dáldið franskt eitthvað, og já enn betra er það með sódavatni...næstum því alveg einsog Mojitos.
Rommið gerir örugglega gæfumuninn í kokteilnum...en já endilega prufiði.
Hvort sem er með rommi eða án :) hihihi..
Svona fersk mynta er líka bráðholl ;)
Seinnipartinn í gær kom Dísamma (Dísa amma) og sótti mig.
Við erum æðislega góðar saman í búðunum.
Fórum auðvitað aðeins í búðir einsog vanalega..hahaha...
Alveg á hreinu að "shopaholic" genin koma úr móðurætt :)
En við vorum reyndar bara í matarbúðunum í gær.
Erum langtum skárri þar...samt nett klikkaðar.
Ég er alveg með það á hreinu að okkur er ekki sjálfrátt...þetta er okkur eðlislægt....
Fórum heim til afa og ég eldaði og snerist um í eldhúsinu...elska það!
Vill helst ein gera allt saman. Love to control!
Því að það verður allt að vera eftir mínu höfði :)
og mér finnst líka fínt að leyfa fólki að slappa af á meðan ég matreiði gúmmelaði handa því.
Væri góð á Ítalíu í litríkum blómakjól á táslunum í eldhúsinu allann daginn, með krakkana útum allt hús...
Guðbjörg móðursystir og DaníelaDís dóttir hennar komu og snæddu með okkur þennan dýrindis mat sem var Bleikja í hunangslegi, litlar og sætar karteflur og fetasalat. Slef...
Nuddaði svo afa eftir matinn og litaði og plokkaði stelpurnar...voða gaman að dúllast svona.
Ég fór að sjálfsögðu ekki tómhent heim frá Dísömmu...ooonei fékk alveg tvo toppa, einn bol, hettupeysu og tvær náttbuxur (æði kósílegar og með flottu pálmatré-mynstri), stækkunarspegil til að setja á baðherbergisspegilinn, hanska og örugglega e-ð fleira sem ég er að gleyma.
Hehe...bara alveg einsog mar hafi farið í verslunarleiðangur....
Svona er þetta alltaf....yndislegt fólk.
Man hvað mér þótti alltaf gaman að vera hjá þeim í dennn....
Þar var ég sko Sunnanvindurinn hans afa síns og saug hrá egg á hverjum degi einsog hann svo ég yrði nú ekki veik (oj oj fæ alveg velgju að hugsa til þess núna)
Afi borðaði líka alltaf óskajógúrt með kaffibragði..ummm....það er ennþá gott :)
Ég gat endalaust skoðað í skúffur og skápa og fundið eitthvað spennandi...skartið hennar ömmu...eða snúrur og tengi frá afa.
Sjoppan á Leifsgötunni var líka oft heimsótt...til að kaupa kók&prins (SunnaSælgæstisgrís) en líka til að spjalla við búðafólkið... fannst nefnilega ekkert leiðinlegt að tala.
Blaðurskjóða af guðs náð.
Var hundrað sinnum verri þá en í dag :) er það hægt spyrja kannski sumir sig...??
Gaf mig á tal við nær hvern sem er...jájá mamma og pabbi vorum stundum í stökustu vandræðum með mig svona úti á meðal almennings.
Reyndar heima líka...vildi alltaf sitja yfir fólki og hlusta með mín pottaeyru...greip svo oft frammí ef mér fannst ég vita um hvað var talað eða ef ég hafði eitthvað mikilvægt við það að bæta...mahahaha...
Ég verð örugglega geggjuð (þeas meira en í dag) ef ég mun e-n tímann eiga svona málglatt barn.
Það sem hefur bjargaði þessu var hve ótrúlega einlægt og kjútt barn ég var með bollukinnar og gyllta lokka...ússímússíkrússí.
Ég er náttúrulega ennþá voðalega sæt en allt annað en ljóshærð og slétti yfirleitt úr krullunum. Jámm tímarnir breytast og Sunnanvindurinn líka.....það er eitt sem víst er.....vildi samt stundum að ég væri ennþá Dunna litla Díd (gat ekki sagt S) ....no worries...just happy all the time!!
Æii er samt ofboðslega glöð í dag......held meira segja að það sjáist bara svei mér þá :)

14 Comments:
Haha...gleymdi að minnast á skrýtnu tíburasysturnar hinummegin við götuna... var skíthrædd alltaf við þær...horfði á þær í gegnum blúndugardínurnar hennar ömmu í stofunni.
Ég sá þær fyrir nokkrum árum og fékk sting í magann...hálfgerða óttatilfinningu. Weird!
Kolaports- og Kringluferðirnar eru ógleymanlegar.....steiktar
Veistu það Sunna, ég bíð spennt eftir því að þú eigir barn. Ef það verður eitthvað líkt þér þá verður það alveg hrikalega fyndið og skemmtilegt og ég efast ekki um það að þegar þú ferð á foreldrafundi þá færð þú þessi comment frá kennaranum: "talar svolítið mikið" :)
Kv. Sigurbjörg
Veistu það Sunna, ég bíð spennt eftir því að þú eigir barn. Ef það verður eitthvað líkt þér þá verður það alveg hrikalega fyndið og skemmtilegt og ég efast ekki um það að þegar þú ferð á foreldrafundi þá færð þú þessi comment frá kennaranum: "talar svolítið mikið" :)
Kv. Sigurbjörg
Hehehe já Sigurbjörg ég fékk alltaf komment um blaðrið í mér á foreldrafundum...
En þau komment voru þó yfirleitt aldrei neikvæð enda með eindæmum skemmtilegt og líflegt stúlkubarn.
Einn kennari sagði að ég virkaði sem vítamínsprauta á bekkinn...sá kennari er í miklum metum hjá mér :)
Neibb! Ekki Tryggvi...
Það var kennari í Holtaskóla...
Þú varst örugglega aldrei hjá honum enda mest í Boston á þessum tíma :)
ekkert smá æðislegur pistill. Fékk mig alveg til að rifja upp gamla daga með ömmu og afa. Og já Sunna þú ert alveg ekta kokkur í blómakjólnum á ítalíu. Þú ert algjört æði!
Til hamingju med ibudina elsku Sunna min!!! Maria er ekki buin ad finna neitt svo eg viti en eg er ad fara ad flytja a fimmtudaginn! Jibbi!!!
Dis ca
Takkítakk esskan...ég er ekkert smá lukkuleg...það reddast alltaf allt!! :)(allir orðnir þreyttir á þessum frasa mínum)
Við erum þá bara að flytja á sama tíma...erum svo í takt.
Já ég þyrfti að fá gsm-númerið hennar Maríu hjá þér....heyra aðeins í skvísunni.
Já vá mar...get ekki beðið! Tilhugsunin um nóg af ferskum parmesan og klassa rauðvíni daginn út og inn...slef...já og fallegir ítalskir karlmenn....gerist örugglega ekki betra.
Hlakka svooo til að djamma og djúsa á fös. it´s been tooo long!!
Hehe...hvernig væri nú að koma hingað og elda eina svona ljúfenga máltíð handa manni, svo er maður alltaf að bíða eftir því að Sigurbjörg frænka mín bjóði mér yfir í skúffuköku og mjólk:o)
Love
Badda..
Eg er flutt og allt gengur vel. Numerid hja Mariu er 662 6414
Astarkvedja,
Asdis
Æðislegt að heyra DisCa mín....ég er svona semi-flutt....svooo mikið af dóti sem fylgir mér alltaf hreint "andvarp" ....Elska þig!!
Guð,er hún Badda að minna mig á skúffukökuna :) híhí, Sunna aldrei að vita nema ég bjóði bæði þér og Böddu í skúffuköku og mjólk. Hverngi líst þér á það?
Kv. Sigurbjörg
Ummmmmm súkkulaðikaka og ísköld mjólk....
Styð hugmyndina!
Skrifa ummæli
<< Home