Donna Summer
er drottningin!
Ef að einhver kona er díva er það hún.
Ég var svo heppin í gær í Góða Hirðinum að finna plötu með henni, Donna Summer; Live and more.
Á reyndar að vera tvöföld en það vantar fyrri plötuna.
En heppin ég, betri lögin eru öll á seinni plötunni :)
Vð erum að tala um snilldar lög sem allir eiga að kannast við einsog Love to love you baby, Last Dance og I feel love.
Er gersamlega búin að nauðga plötunni í kvöld ....sérstaklega I feel love...vááá hvað það er æðislega flott lag.
En í aðra sálma.
Er bara heimakær á laugardagskvöldi.
Aha komin tími til að mínu mati og annarra...ehehe...
Borðaði góðan mat og drakk 2 rauðvínsglös (ráðlagður dagsskammtur)
Fínt að slappa af með sjálfum sér, Donnu Summer og hlaða batteríin fyrir komandi vetur.
B.T.W. fyrir þá sem ekki vita þá er ég hætt í lögfræðinni.
Mannskemmandi nám fyrir lífsglaðar manneskjur.
Skráði mig í frönsku og er rosa spennt fyrir því....
Svo mun mig vanta húsnæði frá og með fyrsta september.
Þannig að endilega látið mig vita ef þið þekkið einhvern sem að þekkir einhvern sem að þekkir kannski einhvern sem er að leita að drauma-leigjanda.
Læt þetta nægja í kvöld...pistill um vínyl vikunnar kemur von bráðar...gæti trúað að hann muni tengjast tónleikum næstu helgar...
Góða nótt elskurnar... gangið hæfilega hratt um gleðinnar dyr...miklu miklu skemmtilegra!

3 Comments:
hæ elskan! langaði bara að kasta á þig kveðju! vonlaust að hitta þig EKKERT í sumar.....vona að þú hafir það engu að síður gott og finnir íbúð fyrir haustið - ég skal halda eyrum opnum ef ég heyri af einhverju sem er í boði!
Ef þú kemst í Beach Boys live plötu skaltu hlusta á hana. Á disk sem er sameiginlegar tvær plötur frá London og hef hlustað mikið á hann undanfarið.
Haltu svo áfram að vera hot:)
Jamms...þarf að eignast Beach Boys á vínyl..á bara Best of diskinn...
The hottie tottie sunny bunny
Skrifa ummæli
<< Home