.comment-link {margin-left:.6em;}

Sunna Sweet

20.6.05

Duran Duran eða Wham?

Plata liðinnar viku með David Bowie var
The Rise and Fall of Ziggy Stardust and the Spiders from Mars.
Brillíant.
Með þeim betri fyrr og seinna.
Maðurinn er algjör snillingur. (alls ekki nýjar fréttir)
Ég dýrka textana hans.
Eru klikkað fyndnir en líka stundum alvarlegir.
Gæjarnir sem spila með meistaranum eru Mick Ronson (gítar, píanó og raddir), Trevor Bolder (bassi) og Mick Woodmansey (trommur).
Persónulega finnst mér David Bowie laaang sætastur..eitthvað svo fokking sexí en Trevor er dáldið Sunnulegur með skegg og sítt dökkt hár ;) spilar líka á Bassa sem er kúl!
Það eru heil ellefu lög á plötunni og mér finnst bestu lögin vera Starman, Ziggy Stardust og Moonage Daydream.
Aftan á umslaginu stendur "to be played at maximum volume" hehehe...geri nágrönnum mínum það ekki nema spari spari.
Platan er tekin upp í London og gefin út 1972...jesússs ..þá voru alveg níu ár í mig.
Skondið að hugsa til þess :)
Platan kom úr smiðju foreldra minna.
Fékk einnig tvöfalda plötu með honum frá þeim sem er tekin upp "live" í Fíladelfíu ´74 og heitir einfaldlega David Live.
Þetta er alveg 4 stjörnu vínyll að mínu mati, jafnvel 4 1/2.

Er núna að tjilla uppí sófa með DuranDuran á fóninum.
Hef aldrei gert upp á milli Þeirra og Wham...bara svona bæði betri.
Kannski oggupínuponsu meiri Duran gella ef ég þarf að velja.
Hvað eru þið lesendur góðir? Bæði, annað hvort eða hvorugt??
Wham eru samt alveg meiriháttar og á ég þó nokkuð margar "singúls" plötur með lögum einsog Wake me up before you go go, Careless Whisper (lag sem á sérstakan sess í huga mér) Heartbeat, Freedom og Like a baby.
Annars get ég varla beðið eftir Duran tónleikunum 30. júní.
Ætla sko pottþétt í bleiku Reebook eróbikk skónum mínum með legghlífar :)
Partí fyrir og eftir tónleika að sjálfsögðu (fyrir v.i.p. only) mehehe...
HerraGvuð..þetta verður svooo gaman!!

Greatest Hits # Duran Duran
Is there something I should know
The Reflex
A view to a kill
Ordinary world
Save a prayer
Rio
Hungry like the wolf
Girls on film
Planet earth
Union of the snake
New moon on monday
Wild boys
Notorious
I don´t want your love
All she wants Is
Electric Barabarella
Serious
Skin trade
Come undone

Einmitt!...bara góð lög!!

Úpps! klukkan að ganga þrjú og ég á eftir að handþvo fullt af drasli sem ég ætla með til þýskalands eftir u.þ.b. sólarhring. Best að koma sér í það og skríða svo í sæng.
Bið að heilsa í bili...blogga næst frá meginlandinu.

P.S. Vínyll vikunnar fer í tveggja vikna sumarfrí einsog ég.

P.S.S. Munið elskurnar að Bjartsýni er svo miklu betri en Bölsýni ;)

5 Comments:

At 6:21 e.h., júní 22, 2005, Anonymous Nafnlaus said...

Fèkkstu pakkann frà mèr???

knùs fra Noregspjøllu

 
At 9:22 e.h., júní 23, 2005, Blogger sunnasweet said...

Ja elskan ...takk fyrir!
Fekk hann bara kvoldid adur en eg for ut og gat ekki bjallad a thig og thakkad fyrir mig....eg veit algjor doni :( sorry honey...knus og kram
Your sweetest thing...

 
At 11:07 f.h., júní 28, 2005, Anonymous Nafnlaus said...

Electric Barbarella er ótrúlega gott lag í góðum bassagræjum. Vanmetið segi ég.

 
At 7:04 e.h., júní 28, 2005, Blogger sunnasweet said...

aha aha verd ad vera sammala ther Sibbster

 
At 4:06 e.h., júlí 02, 2005, Blogger sunnasweet said...

Takkítakk knúsímús...
ÆÐI...þá hlökkum við bara til 16. ágúst.
Þeir voru víst geðveikt góðir á Roskilde festival...

 

Skrifa ummæli

<< Home