.comment-link {margin-left:.6em;}

Sunna Sweet

13.6.05

I want to break free

Ummm.....fékk góða gesti í mat til mín fyrr í kvöld.
Ragnhildur Ósk, Jörn og Christian komu spes frá Osló til að hitta mig, heh gaman að því ;)
Matreiddi kjúkling í pestó og sumarsalat.
Matnum var auðvitað skolað niður með góðu rauðvíni.
Svo galdraði SunnaDísSvakaSkvís eina franska og blauta súkkulaðiköku fram úr erminni.
Sörverað með vanilluís og jarðaberjum...deliciousososos.....
Þetta var yndislegt kvöld í alla staði og þakka ég gestunum kærlega fyrir góðar stundir.

Annars var helgin ágæt...hardcore djamm&djús á föstudaginn sem endaði í þriggja manna pastapartíi hjá mér varð til þess að sólríkum og fallegum laugardegi var eytt í rúminu.
Drattaðist á fætur um áttaleytið, nærði mig og ákvað að ég gæti sko ekki látið ekki sjá mig í bænum.
Fór í kampavín (þýðir ekkert að bjóða prímadonnunni eitthvað Freyðivínssull) og jarðaber til Búbbulínu sem varð til þess að yfir mig helltist brjálað áfengisógeðismók..usss...ákvað að vera stillt.
Hlustuðum á Moby og Faithless. Stemming!
Það var samt eins og ég vissi allann tímann innst inni að ég hefði átt að vera heima í rólegheitunum.
Svona "not meant to be" dæmi, einsog svo margt annað í lífinu, en nei maður lætur ekki segjast og streitist á móti, hræddur um að missa af herlegheitunum. Glætan Spætan. Sjorinn horinn. Líkurnar píkurnar....
Maður er ekki að missa af neinu. Nema kannski eigin blissi. Sem var bara ekki til staðar í gær. Við erum að tala um það að Dj. Margeir og Árni E gátu ekki einu sinni lyft mér á hærra plan.
Sem er náttl ótrúlegt þar sem að ég elska PartyZone.
Byrjaði sko alveg að hlusta á þá þegar eg var ellefu eða tólf ára gömul þegar að þeir gáfu út fyrsta partyzone diskinn.
Fór bara heim að sofa...

Ég var að enda við að hlusta á The Works með Queen í annað skipti núna áðan og er nokkuð sátt. Kannski ekkert rosaleg stuðplata, en lög einsog Radio Gaga , It´s a hard life og I want to break free eru alltaf góð.
Strákarnir eru helvíti góðir lagasmiðir. Mér finnast textarnir mjög áhugaverðir hjá þeim öllum.
Platan er tekin upp í Los Angeles, Ameríku og Munich, Þýskalandi 83´-84´.
Rúmlega tuttugu ára gömul plata sem var í eigu föður míns að mig minnir.
Hef ekki hugmynd hvar hann keypti hana...enda skiptir það ekki rass máli.
Framan á coverinu er brún/hvít mynd af þeim sitjandi. Dáldill mysterious svipur á þeim öllum. Svona "ég veit dálítið sem að þú veist ekki" svipur.
Freddie Mercury heitinn er auðvitað í sínu klassíska dressi á myndinni, svörtum hlýrabol og leðurbuxum með flotta hormottu.
Einn hinna er með sítt, svart hár og permó sem er nákvæmlega einsog pabbi var í den..hihi..pabbi greinilega alveg hipp og kúl :)
Annars verð ég að velja Break free sem lag plötunnar...þó að Radio Gaga sé ekki mikið síðra.
Platan fær 3 stjörnur.

Vínyll vikunnar í þetta skiptið er með meistara Bowie og heitir The Rise and Fall of Ziggy Stardust and the Spiders from Mars...víííí hef reyndar margoft hlustað á hana en er alveg sama þó ég hlusti aðeins oftar :)
Muniði að elska þá sem að elska ykkur...

4 Comments:

At 11:22 f.h., júní 13, 2005, Anonymous Nafnlaus said...

Já það var ekki uppi á þér tippið á laugardagskvöldið elskan! En ég er búin að heyra svaka sögur af þér frá föstudagskvöldinu svo þú sleppur...

Ásdís

 
At 12:03 e.h., júní 13, 2005, Blogger sunnasweet said...

Veit nú ekki með "svaka sögur" frá föstudagskveldi en þú varst aftur á móti mjög skrautleg á laugardagskvöldið....vægast sagt skrautlegt!

 
At 12:46 e.h., júní 13, 2005, Blogger sunnasweet said...

Já Bowie er minn kóngur líka...þó að Elvis hafi verið góður er Bowie bara miklu meira kúl:)
Kjúklingur, Parmesan og sveppir eru bara ávísun á eitthvað sjúklega gott...
Þú myndir örugglega fíla þennan pestó-kjúklingarétt í tætlur.
Ég, þú og Raggs þyrftum að taka einsog eitt gott matarboð/fyllerí saman áður en sumarið er óver...
Ætlið þið á Sonic Youth??

 
At 4:30 e.h., júní 14, 2005, Blogger sunnasweet said...

Nei ég held ég hafi gert annan fyrir þig...ummmm samt ekki alveg viss...
En já það er einmitt sama ástand hjá mér með Sonic Youth..hef ekki átt penge til að kaupa miða en vona að það reddist.
Það reddast alltaf allt hjá mér!!!
Verðum að plana gettúgether súún...

 

Skrifa ummæli

<< Home