.comment-link {margin-left:.6em;}

Sunna Sweet

12.5.05

Vínyll Vikunnar

Ahaaa...thats right!
Ætla koma með smá nýjung....svona til að poppa þetta aðeins upp...svo boooring eitthvað.
Þar sem að DJ SunnaSweet er byrjuð að spila vinyl plöturnar sínar á fullu...ætla ég að hafa svona vikulegan dagskrárlið á blogginu mínu sem mun heita "Vínyll Vikunnar"
Þá mun ég tilkynna eina ákveðna plötu...segja aðeins frá henni og lögunum sem hana prýða, hvenær hún var gefin út, hvernig umslagið sjálft lítur út, hvað hún kostaði og hvar hún var keypt etc. (þ.e.a.s. ef þær upplýsingar eru til staðar á annað borð)
Svo hlusta ég nokkrum sinnum á hana hérna heima í gúddí fíling og kynni mér innihald og sögu hljómsveitarinnar/hljómsveitanna vel.
Að viku liðinni mun ég svo koma með einkunn og umsögn um plötuna.
Sneddí ekki satt??
Mér og ykkur til fróðleiks og skemmtunar ;)
Nú mun fyrsti Vínyllinn kynntur: NOW (thats what I call music) 8 (32 Top Chart Hits)
Þetta eru tvær plötur, sem þýðir fjórar hliðar allt í allt.
Ég er alltaf dáldið hrifin af svona safnplötum...svo mikil breidd.
Þarna má sjá lög með flytjendum einsog Human League, Grace Jones, Cutting Crew og Run DMC. Umslagið er ekkert rosalega grúví einsog tíðkast með svona safnplötur...yfirleitt bara frekar lame cover á þeim..og ætla ég því ekkert að lýsa því sérstaklega. En ég er rooosa spennt að byrja og bið því bara að heilsa ykkur í bili...kem með umsögnina einhvern tímann hinum megin við helgina...og jafnvel djúsí sögur af djammi og djúsi..það er möst!! Góða hvítaSUNNUhelgi....

2 Comments:

At 4:55 e.h., maí 14, 2005, Anonymous Nafnlaus said...

Þú þarft endilega að fara að redda þér útvarpsþætti kona ;)

Ásdís

 
At 5:42 e.h., maí 14, 2005, Blogger sunnasweet said...

Ahaaa..bonne ideé!! Tala við strákana á X-inu ;)

 

Skrifa ummæli

<< Home