Sándið blastað
Váááá....var að fá græjur í gær. Svona Tivoli Audio!
Ómen.... hrikalega flottar og helví### massíft sándið....
jibbí jei loksins...eftir að gömlu góðu fermingargræjurnar gáfu sig hef ég bara ekki verið heil manneskja!!
Music is my life!!
Takk pabbi....hlýtur að vera besta ammælisgjöfin í ár....nema einhver eigi eftir að gefa mér bleikan sanseraðan pikköpp (draumabíllinn)
Efast einhvern veginn um það??
Annars er allt gott að frétta...
Síðasta helgi var hin skemmtilegasta...ég og Guddy tókum smá "trip down memory lane" á föstudagskvöldið og horfðum á SATC 1.
Ég elska þessa þætti...fæ bara ekki nóg! Fæ reyndar aldrei nóg af neinu...muhahaha...
Á laugardagskvöldið fór ég í 10 fermingarafmæli.
Það var að sjálfsögðu haldið í KFC 2 og bara voða voða gaman að hitta gamla og sjúskaða skólafélaga. Haha...
Hitti svo skvísurnar mínar uppúr miðnætti, þ.e.a.s. SexySenjorituna & DísuSkvís ....tjöttuðum og tókum "smá" fótósjútt á geimið ;)
Eftir að hafa ælt rauðvíninu sem ég drakk fyrr um kvöldið (var sko ekkert búin að borða) vorum við reddí í bæinn. Lúkk át...
Skelltum okkur á Traffík...sko aðal staðurinn í KFC.... þar var margt um manninn....sætir strákar fæddir ´87 og solleis...úfff helst til of ungt... og þó??
Um fimmleytið röltum við Guddy heim á leið....var hálf skökk eitthvað....
Sunnu-dagurinn átti að fara í lærdóm en fór í ekki neitt....reyndar bauð ég nokkrum buddum til mín í snakk og nammi um kveldið....voða kósý.
Hlustuðum á fermingar-tónlist frá síðasta áratug...nöfn bandanna segir eiginlega allt sem segja þarf ... Ace of Base, Run DMC, Haddaway, Dr. Alban, Culture beat, C&C music factory og Whigfield...æðislegt!!! Var langt frameftir nóttu í fíling....
Annars varð ég árinu eldri á mánudag og er því 24 ung í dag.
Sprækari en nokkru sinni fyrr ;)
1 Sex and the city
2 Keflavík, Kef-city=KFC

3 Comments:
þú verður bara sætari með hverju árinu skvís og enn og aftur til hamingju með daginn...ammælisgjöfin kemur seinna...er að safna fyrir bleikum pickup handa þér :)
"Maður verður nú að hafa einhverja sjálfsstjórn"
Kóngurinn
Já Sigga...ég er ein af þessum konum sem verð bara sætari og sætari sem árin líða ;) Þú líka!!
Já Guddy, vinur minn mun vonandi standa við gefin orð um bleikan pikköpp, en spurning er hvort ég fái hann fyrir sumarið??
Annars líst mér rosa vel á að krúsa um sveitir landsins og vera landsins mestu skoffín...
Já kóngur góður, þú býrð yfir sjálfstjórn sem ég mun aldrei á ævinni öðlast.... ;)
Skrifa ummæli
<< Home