.comment-link {margin-left:.6em;}

Sunna Sweet

8.3.05

Áttundi mars tvöþúsund og fimm

Í dag er alþjóðlegur baráttudagur kvenna fyrir friði og jafnrétti.
V-dagurinn er líka í dag ...þar sem V-ið vísar til upphafsstafsins í orðunum vagina (píka), victory (sigur) og Valentinesday (Valentínusardagur)
Fyrir rúmlega 4 árum bauð mín ástkæra
ÁsdísSkvís mér á leikritið Píkusögur (Vagina monologues) eftir Eve Ensler.
Verð ég henni ævinlega þakklát fyrir það :) hihi
Þetta var ótrúlega skemmtilegt verk og fékk mann til umhugsunar um álit kvenna á sjálfum sér.... hvað/hver mótar álitið?

Afhverju skiptir það okkur máli yfirhöfuð?? Ótal spurningar vakna...
Ykkur til fróðleiks og gamans er höfundur leikritsins Eve Ensler, sjálfur stofnandi alþjóðlegu V-dagssamtakanna.
V-dagurinn spratt einmitt upp úr sýningum Eve á Píkusögum....sem sýnt hefur verið í fjöldamörgum löndum og slegið í gegn.
Síðastliðin sunnudag var viðtal við hana á bls. 20 í Morgunblaðinu.

Möst ríd!
Svo eiga tvær klassa stúlkur sem ég þekki afmæli....önnur er ÞórdísAnna "litla" frænka, hin er BerglindDaða meðlimur GoldenGirls the-one-and-only...
Til lukku með daginn pjöllur..... XOXOXO
Vildi að ég ætti afmæli á þessum merka degi : ( búhú...
En maður velur sér víst ekki afmælisdag frekar en fjölskyldu.....enda svosum nokkuð sátt einsog staðan er í dag.
Á yndislegustu og bestustu fjölskyldu í heimi sem vill allt fyrir mig gera...enda geri ég allt fyrir þau...eeh næstum ;)
Njótið dagsins og elskið hvort annað því að ástin sigrar allt...KissKissKnús&Kram, PÍKUSTRÍÐSKONAN KVEÐUR

5 Comments:

At 3:07 f.h., mars 09, 2005, Anonymous Nafnlaus said...

Hver er kóngurinn? Ég er frekar forvitin. Knús frá New York, Sólrún

 
At 5:45 f.h., mars 09, 2005, Blogger Lára Hrund said...

Hey ég fór og sá vagina monologues og mér fannst það alveg ÆÐI, mér fannst fullnægingagellan alveg geggjuð..... ekkert smá margar mismunandi fullnægingar... knús og kossar frá the OC.

 
At 9:58 f.h., mars 09, 2005, Anonymous Nafnlaus said...

Já, það var mjög gaman hjá okkur á Píkusögum Sunna Dís! Manstu samt að við vorum eitthvað of seinar eða eitthvað og var ekki hleypt inn og þurftum að fara seinna??? Hvernig var þetta aftur?

Ástarkveðja,
Ásdís

 
At 2:02 e.h., mars 09, 2005, Blogger sunnasweet said...

Woww bara comments alla leið frá OC og New York...þetta er lesið víða um heim :) jei jei jei!!
Annars er kóngurinn góðvinur minn Sólrún...segi þér það yfir kaffibolla e-n tímann ;)
Já Lára, fullnægingarkonan var rosa fyndin...ég hló og hló einsog mér einni er lagið.
Við komum svo seint í fyrra skiptið að okkur var ekki hleypt inn...en okkur tókst að fara áður en ég stakk af til Frakklands...það var ÆðiGæði!!

 
At 2:22 e.h., mars 13, 2005, Blogger sunnasweet said...

Jamms...er þaggi bara?
Skellum okkur saman...

 

Skrifa ummæli

<< Home