.comment-link {margin-left:.6em;}

Sunna Sweet

1.2.05

"Alkóhólískt"

Já það má segja að nýliðin helgi hafi verið áhugaverð, en jafnframt mis-skemmtileg :)
Föstudagurinn var bara tekin í stúss og dúllerí...pedicure, brúnkuþerapí og þvott...ég og Guddy borðuðum svo mat sem að Rikki Chan eldaði og létum okkur hlakka til laugardagsins.
Eldsnemma á laugardagsmorgni kom Darralingur í heimsókn til "big sys" og naut góðmennsku hennar fram eftir degi....endurnar voru heimsóttar og kíkt í kaffi til skyldmenna.
Klukkan 1800 vorum við tvær systur úr tungunum mættar á Austur Indía fjelagið og borðuðum þar frábæran mat og og þar var auðvitað líka drukkið vín (víðtekin venja...hehehe).
Mæli hiklaust með þessu restó.
Er víst eitt besta indverska veitingahúsið í Evrópu í dag.
Um áttaleytið var skokkað niður Hverfis í Þjóðleikhúsið og séð eitt stykki eftir Hallgrím Helga.
Þetta er allt að koma heitir það og er eitt af þeim betri sem að ég hef séð síðustu ár...
Ég hló einsog vitleysingur alla þrjá tímana :) ógleymanlegt atriðið þegar að brúðarmærin Ólavía Hrönn tók Stand by your man....muhahaha
Ég hef nebbla alla tíð elskað þetta lag í flutningi Tammy Wynette.
Annars var þetta síðasta "sjóið" sem ég best veit og því eruð þið ekki að fara að sjá það nema sýningar verði teknar aftur upp í vor.
Eftir leiksýninguna var rölt yfir á 101 bar þar sem okkur leið barasta einsog við værum á árshátíð alþingismanna og vorum því fljótar að láta okkur hverfa.
Veðurguðir sáu um að blása hárið á okkur og við mættum á REX einsog Krusty trúður í Simpsons með krullur útum allt!!! Og rjóðar í kinnum ;) en samt sætastar...
Á REX voru drukkin mörg glös af rauðu víni og mikið trallað.
Seðlarnir voru ekki sparaðir $$$$ enda kostaði kveldið í heild sinni fokking fimmtán þúsund kall sem er klikkun!!
Kaffibarinn var að sjálfsögðu sóttur heim og þar var haldið áfram að drekka... einsog mófó!
Held að SunnaSweet hafi innbyrgt einum of mikið en gott þykir af alkóhóli þessa nótt og endaði því í bullinu.......(black-out)...........................
Alkóhólískur skandall!!
Takk samt fyrir greisí kvöld....
Sunnu-dagurinn var slæmur (Martini-guilt)
Eigi var ég rólfær en þurfti samt að vinna, kíkja í barnaafmæli og sækja farsímann minn uppí Mosfellsbæ til leigubílstjóra sem ég veit ekki ennþá deili á né hvernig í fjandanum síminn minn komst þangað (dettur í hug lagið mr. cap driver með Lenny Kravitz)....hahaha....gaman að þessu??
Einsog ég segi alltaf þegar að ég er ekki sú Superwoman sem að ég er yfirleitt : ég er afurð foreldra minna og get svosem ekki gert margt í því..þetta er ábyggilega einhver þroskahemill!
Það jákvæða er að ég geri mér grein fyrir þessu öllu saman....eða svona næstum því :)
Það neikvæða gerðist hinsvegar í gær þegar að tölvan mín tók sig til og krassaði.
Öll gögn út í buskann.
Mér leið líkt og krumla hefði hrifsað úr mér innyflin :#
Kannski eru þetta örlöganornirnar að segja mér að hreinsa til í lífinu mínu...
Einsog þeir segja sem eru forlagatrúar..... andspænis skapanornunum er enginn óhultur.
En djísúss...kommon...þarna voru trilljón verkefni, alls konar myndir og persónulegar skriftir.....
Ætla að halda haus og hugga mig við orð sem ég fékk frá góðum vini fyrir nokkrum árum...
It will be fine in the end, if its not fine its not the end .....
Í dag er fyrsti feb. og því fyrsti í spari hjá mér....ekki freysta mín elskurnar!
Má ekki eyða í vitleysu! Verð að vera ábyrgðarfull og skynsöm.....sjáum hvernig gengur...
Njótið líðandi stundar....

3 Comments:

At 12:34 e.h., febrúar 01, 2005, Blogger Ásdís said...

Búin að plana djamm um helgina? ;)

 
At 9:19 e.h., febrúar 01, 2005, Blogger Lára Hrund said...

Elskan mín..... Það er ekkert annað!! Mikið um að vera hjá þér, ég vona að allt lagist og þér gangi allt í haginn.

 
At 4:58 f.h., febrúar 06, 2005, Blogger sunnasweet said...

Takk stelpur fyrir baráttukveðjurnar...allt er að komast í sæmt lag í kringum mig og ég er hress sem fress.... :)
Eina sem mér hefur ekki enn tekist er að byrja að spara monnínga :)
Kommon....það mun taka smá tíma að hætta að spreða og byrja að spara!!
Gamla tuggan ,,góðir hlutir gerast hægt" gleymist seint á Sunnubæ...

Sakna þín SHS....stattu þig stelpuskottið mitt!!
Bið að heilsa Kidda Pilot og Petteri...
Kiss kiss knús og kram

 

Skrifa ummæli

<< Home