Human!
Það er nótt.
Það er dimm og köld nótt.
Klukkan er hálf fjögur.
Ég er að hlusta á Moby,
og borða sólkjarnabrauð með osti,
og drekka kristal. Nýi kristallinn sem er kalkbættur...ógisslega góður!!
Var hjá Guddy áðan, horfðum á Depeche Mode og Human League á dvd....
Blast from the past eða hvað???
Svaka stemming í gangi....verið að hita sig upp fyrir komandi 80´ kvöld á Prikinu.
Reyni ekki einu sinni að fara upp í rúm fyrren fjögur, fimm í fyrsta lagi þessar næturnar....
Fer svo grútmygluð og rauðeygð í skólann, kem heim og sef restina af ráðlögðum svefnskammti.
Alltílæ í janúar...
Annars hefur SunnaSweet brallað margt síðan sidst....þar má helst nefna "quality time" með litla bróður.... matarboð hjá Guðbjörgu, þar sem að Sunshine og KjarriKúl sáum um að skemmta liðinu....eða réttara sagt mis/ofbjóða því :) erum gott team í bullinu!!!
Borðaði með Sirrýlishious á Vegamótum....ummmmm!
Hef gengið Ægissíðuna fram og tilbaka...fram og tilbaka með góðan lagalista í eyrunum.
Setið á kaffihúsum og sötrað Café au lait.
Farið á útsölur.... :) :) :)
Allt annað er gleymt.
Nema,
síðustu nótt var ég að lesa bókina mína Arabíukonur.
Verið var að segja frá daglegu lífi í Damaskus, höfuðborg Sýrlands.
Mér varð þá snöggvast hugsað til yfirvegaða en þó snarklikkaða fjölskylduföðursins Muhammed, sem var með mér í bekk í háskólanum í Montpellier.
Hann er frá Damaskus, Sýrlandi.
Við vorum að læra frönsku.
Hann skar sig úr sökum aldurs og edrúmennsku :)
Að hans eigin sögn er/var helsta markmiðið í lífi hans að geta gert hina fullkomnu efnasprengju eða eitthvað solleis...einkar skemmtilegt að vera með manni í tíma daglega, vitandi það að hann væri alltaf að hugsa bombur.
Svona hughreystandi!!
Kauði gekk alltaf með þessa líka risastóru arabísku/frönsku orðabók á sér.....við í bekknum eyddum hádegis- og kaffihléinu oftar en ekki í samsæriskenningar um að þetta væri bara plat-orðabók, hún væri í raun hol að innan og þar geymdi hann dýnamít til að sprengja skólann upp.
Ekkert að marka þessar kenningar svona eftir á séð....vorum alltaf útúrreykt með sólsting...
En á sínum tíma var þetta afskaplega góð og gild afsökun fyrir því að mæta ekki í skólann og liggja bara í sólbaði á ströndinni í staðinn, ja eða hanga á Place de la comediè og drekka sterkan tvöfaldan espresso eða bara bjórinn. Svona annað hvort eða!
Those were the good old times....
Reyndar er lífið ekki mikið verra þessa dagana...örugglega bara svipað þegar ég spái í því.....líkt, en samt öðruvísi...þið vitið....alveg jafn skemmtilegt en samt ekki það sama!!
Á morgun er stefnan tekin á Kringluna, gengið verður búð úr búð og vonandi fundin djammdress fyrir fös og lau....
Já það má segja að mín helstu mottó þessa dagana séu "djamm&djús" "tjútt&trall" "skrall&svínerí" .....enda lífið ekki eilíft og því óþarfi að vera of alvarlegur!!
Vísa í texta Human League...."I´m only human...born to make mistakes" og vona að fólk dæmi mig ekki. Ég dæmi það aftur á móti trekk í trekk....haha...
Ætla í jóga, sem er hollt og gott!
En nú er lyklaborðið orðið óskýrt þrátt fyrir gleraugun, mín því farin að horfa í átt til bólsins og hugsar sér gott til glóðinnar...muhaha....
Góða nótt....
P.S. New Order er að koma með plötu í mars...nýtt stuff...ekki sem verst!!

7 Comments:
Svo skondnir þessir pistlar sem þú skrifar svona um miðja nótt á milli svefns og vöku! Alltaf eins og þú sért í hálfgerðu móki við skriftirnar og komin hálfa leið inn í draumalandið ;)
Haha...já svo þegar að ég vakna daginn eftir kannast ég ekki við neitt!
Heheheh mottóið þitt er kúl ;) djamm&djús, tjútt&trall, skrall&svínerí ;) ..... eitthvað fyrir minn smekk !!!
Hlakka mikið til helgarinnar ;) en er það ekki bara J.LAW í bíó...sjúklega sætur...mmmmmmm....er að pæla í að fara aftur...maður getur aldrei fengið NÓG af honum ;)
Kv Elísa
Fokking fallegur karlmaður!!
Hæ Sunna mín!
Alltaf gaman að lesa pistlana þína, alveg sama hvort þeir séu skrifaði um nótt eða dag :) En heyrðu ég ætla að bjóða þér á Tupperware kynningu á þriðjudaginn, tala við þig þegar nær dregur en gaman væri ef þú gætir kíkt.
Kv. Sigurbjörg
Hey Sunna þú VERÐUR að fara á Tupperware kynninguna maður..... það er ekki hægt að láta það tækifæri fram hjá sér fara, ég færi ef ég væri á landinu...... Alveg pottþétt. Ég er enn að bíða eftir Amazon, þeir eru enn að leita að Inflight fyrir mig, ég bíð spennt.....
Sorrí Sibba mín...en þarf bara ekki á boxum og áhöldum að halda...er með flottasta eldhúsið á görðunum... ;)
Svo kemst ég ekki til Kef...er föst í borg óttans!!
Já þeir ættu nú að finna hann á Amazon...vonandi!!
Ég gleymdi að tékka á Inflight í Skífunni...endaði bara með Human League á dvd, Transformer með Lou Reed og Massive Attack....gersit alltaf...kaupi eitthvað allt annað en það sem ég var að hugsa um...en það er svo sem ekkert verra....eða hvað??
Kossar&knús til Newport Beach
Skrifa ummæli
<< Home