Live it, learn it...
Ég er svo innilega laus við alla menntagreddu þessa dagana að það hálfa væri nóg...bækurnar ná bara ekki að kveikja í mér. ... usually its not sooo hard...
Sama hvað!!
Les frekar ættfræði og skoða teikningar af jörðum sunnlenskra sveita en að glugga í lög og reglur.
áhugalaus.is!!
Þegar ég tek mér bók í hönd, breytist ég bara í önd, í sólbaði á sólarströnd...
Ætti kannski að byrja að semja vísur og ljóð?
Gerast höfundur?? Drekka kaffi, reykja sígarettur og yrkja??? Neee....
Annars finnst mér einsog ég sé stödd í réttri Reykjavík, en á röngum tíma!
Hvernig getur það skeð??
Stemmir það!
Þarf allt að stemma?
OOOO hvað ég er djúp svona á mánudagsmorgni??
Er í "mood elevator" dauðans....
Hvað get ég gert??
Hvað hressir, kætir og bætir...??
Matur...Kynlíf...Eyðsla...Drykkja....neineineiogafturnei...hjartað heimtar meira!!!
Gvuuuð minn þetta stefnir í eintómt volæði, my so called life!
Finnst ég vera að nálgast eitthvað "deddlæn"
Kannski prófin....hehe...eina sem mér dettur í hug þannig..
Eða er ég að fara að deyja einhverjum stórkostlega dramantískum dauða?
Kannski er ég bara óþroskuð frekjudós sem er vön að allt sé skemmtilegt og æðislegt?
Annars er ég nú bara að reyna að leggja meginreglur stjórnsýslunnar á minnið.....þið vitið...meðalhófs- jafnræðis- málshraða- rannsóknar og andmælareglur laga nr. 37/1993.
Alveg ógisslega skettilegt...
Já það er kúnst að túlka lög....
No further comments....
Muniði bara að enginn er óhultur andspænis skapanornunum.....

1 Comments:
Þú ert kannski of góðu vön Sunna mín. Rauðvín og matarboð passa illa inn í próflestur. En hugsaðu hvað það verður gott eftir prófin! Nota það alltaf á mig.
T.d. á laugardaginn eftir prófin þá verður það algjör dekur dagur. Klipping 30 mín eftir próf, 2 tímar í að tjatta við klippikallinn minn, kaffi og appelsín í gleri. Röllt í bókabúðina alveg svaka sæt og fín. Ein eða tvær jólagjafir í pokann og beint í ríkið að kaupa inn. Mega djamm um kvöldið!
Ó mæ hvað ég óska þess að þessi próf séu búin! 3 búin 2 eftir :/
Skrifa ummæli
<< Home