Drinking-guilt!!
Jesúss....ég er farin að drekka einsog mófó!!
Ekki bara um helgar, nei næstum ALLA virka skóladaga...án gríns! (ég sem var komin í pásu)
Í dag er þriðjudagur og mín vel við skál :) ástæðan er sú að Palli kom í mat til mín með vín kennt við rautt, drukkum hana léttilega og eina til meira segja...án þess að gleyma flottum fordrykk sem nefnist kyr de la mur....
Erum sko gourmande dauðans...(ísl. matgæðingar)
Hélt að ég væri "grand" á því svona in general ....óó nei ef einhver er flottur á því, þá er það hann Páll Heimisson...like a chanel suit, he will always be in the style!!
Mín var sko líka að fá sér í glas í gær eftir vinnu...díses!!
Ekki nóg með að ég þurfi tólf þrepa meðferð við kaupfíkninni, en þá bætist við önnur fíkn.
Kannski ég muni læknast þegar að Ásdís flytur inn til mín á morgun...lets just hope!!
Hún er svo stapil og samviskusöm!! Ég er með semi-samvisku hihi
Inn-flutningurinn er reyndar bara tímabundinn...hún er að leita sér að leiguhúsnæði so if you know a deal...let us know!! Eða bara ekki!!
Haha ...vill helst hafa hana sem lengst hjá mér...gott að kúra í hana :) eldar líka góðan mat!
Annars hefur svosem ekkert margt á daga mína drifið síðan síðast...
-fór í útskriftarpartý á Prikið til Ásdísar á laugardaginn...dansað var við tónaflóð skífuþeytaranna Gullfoss&Geysir. Brillíant!
-barnaafmæli á SUNNU-daginn í gúddí fíling.
-Málþing í hádeginu með Mrs. Royal a.k.a Kristínu Maríu sem nefndist Ógnar slæðan lýðræðinu... ótrúlega áhugavert...pantið tíma til að fræðast nánar.....
Er alveg búin á því...vona að ég verði rólfær í fyrramálið!
Verð að mæta í skaðann...annað væri skaðlegt!!!
Bleeee....

5 Comments:
Já skvísa, það verður heldur betur heilbrigt líferni á okkur þegar ég flyt inn!! Ekkert sukk og svínarí ;)
En annars held ég að ég komi ekki fyrr en á morgun til þín... Langar svo að kveðja hana systur mína og vera í Kef í nótt. Mæti galvösk annað kvöld með ferðatösku í annarri og hvítvínsflösku í hinni!
Love you!
Hvítvínsflösku í annarri...hahaha gat verið...það á að hella mig fulla og misnota mig :)
Hlakka til að fá þig honní bonní!!
MISS ROYAL!! Var búin að gleyma þessu nafni maður!! Nú ætla ég sko að fara að taka það upp sem art-y name!!
Nú langar mig í skúkkulaði-búðing!!
arrrgggggiiiiigggaaarrrrggggg.....
Þú ert æði gæði, þú ert súkkulaðirúsínan mín !!!
Kveðja úr pjöllulandi :)
Hummm?? Hver sendir kveðju frá Pjöllulandi....sko alls ekki margir sem koma til greina!
Já, Mrs. Royal það er nafnið!! Its your tag now..
Eitthvað svo í mótsögn við venjulega merkingu þess... hehe....
Miklu hrifnari af því en DiddaMæs-taginu...það minnir mig alltaf á gamla kjaftakerlingu í sjávarplássi, sem reykir og drekkur hland-kaffi ....úfff. Ekki gott!
Annars get ég ekki hætt að hugsa um súkkulaði & karamellubúðing þessa stundina....
Þyrftum að hafa Royal Reunion sem fyrst...rifja upp flippið sem við tókum upp á í tollinumm til að nota mjólkina muhahaha...
Skrifa ummæli
<< Home