Greyið skýjin skjálfa úr kulda....
Í dag sit ég bara inni, drekk Latte með vannillusýrópi og vorkenni skýjunum...þau skjálfa úr kulda!! Úffípúff.... Var ekki að trúa mínum eigin augum í gærmorgun þegar ég fór útúr húsi... snjór, tryllingslegt rok og voðalega kulsaralegt eitthvað. Slæmt þegar skýjin eru farin að skjálfa! Ekki einu sinni komin fyrsti í vetri. HALLÓ!!
Held að það væri ráð að flýta þeim degi um tvær vikur eða svo, en seinka svo sumardeginum fyrsta í staðinn sem er 22. apríl. Hvert snýr maður sér með svona asnalegar uppástungur??
Annars þýðir ekkert annað en að ,,serrer les dents quand il fait froid" eða bíta á jaxlinn í kuldanum einsog mar segir oft á frönsku...ekki samt viss um að það passi í þessu samhengi...látum það liggja á milli hluta :)
Helgin var horror ef svo má segja...ég vann út í eitt...öll skorin á puttunum eftir mikla og stranga bar-vinnu.
Barinn minn virtist þó laða að alla sætu strákana...ætli það sé ölið sem ég sel á spottprís eða mín óumdeilda fegurð? (Proximity to beauty,makes a man feel more attractive..hahaha)
Humm...látum það líka liggja á milli hluta.
Ég myndi segja að það væri ég...en ekki gefið að allir séu á sömu skoðun sem er þó einkar erfitt að ímynda sér (egóisti!).
Ekki nóg með það að helgin hafi gefið af sér andvirði 6-7 skópara en þá fékk ég 2000 kall í tipps ....verínæsendtheinkjúverímöts....
Annars ætlaði ég að segja ykkur frá því að á SUNNU-daginn fór ég í mikla menningarreisu í 101 með Ragnheiði Ösp listanema. "Varð artífartíwannabe for a day"
Hafnarhúsið a.k.a. Listasafn Reykjavíkur var fyrst heimsótt...og sýning um grafíska hönnun á Íslandi skoðuð....rooosa flott!! Fengum fína leiðsögn hjá Ragga kærastanum hennar Ragnheiðar, sem b.t.w. er listanemi líka og var eitthvað að hjálpa til með sýninguna. Svo var farið í Gallerí Hlemm (eða eitthvað, man ekki alveg nafnið) og þar var sýning eftir krakkana í bekknum hennar Ragnheiðar skoðuð sem heitir Democratic designs...segi bara eitt...verð að eignast pening svo ég geti farið að safna hönnun eftir æskuvinkonu mína hana Ragnheiði...þessi stelpa er algjör snillingur!! Þetta er t.d. eitt af því sem ég verð að eignast!!
Bið ykkur öll vel að lifa og verið góð við hvert annað....word up!

4 Comments:
Umh ja var Mjög kalt í gær, og ef það hefur verið rok í Reykjavík hugsaðu þá hvernig það er í Keflavík :S :) reyndu síðan að spara eithvað af þessum penge sem þú vanst þér inn. Verður að eiga nóg fyrir minni STÓRU afmælisgjöf :) Later yó bRotha
Hey rúsínan mín, sparaðu peningana svo þú getir komið í heimsókn til mín og við getum málað HOLLYWOOD bæinn rauðan....... oh hvað það væri gaman!!!
Hlakka til ad sja thig saetust!!! Get sko vel truad ad thu hafir verid eins og segull a alla saetu strakana :>
Annars verd eg ad vera sammala thvi ad hun Ragnheidur vinkona thin er ad gera mjog flotta hluti tharna! Vaeri alveg til i ad eiga thessa kolla t.d.!
Sjaumst!
Segull is my middle name!!
Didn´t you know hon....hahaha...
Hlakka svo til að sjá þig að ég á erfitt með andardrátt ....í alvöru talað....
Skrifa ummæli
<< Home