I think too much!!
Góða kveldið ...erekkiallirístuði...?
Hehe...mín að sötra rauðvín og vill fara að djamma en á enga djamm-glaða vini, allavega ekki á eylandinu sjálfu...uhuhu..."snökt, snökt"
Er að fara vinna 24/7 alla helgina þannig að það er kannski bara betra að hafa hljótt um sig...eða hvað?
Svona er þetta bara...get ekkert í þessu gert annað en að hugsa að ástandið gæti svosem verið miklu verra og setja svo uppáhalds lagið mitt, Borderline með Madonnu á fóninn og dansa :)
(á sko minn eigin dans við þetta lag, samin í mars 2002 á 9 rue D´Alger, 34000 Montpellier,Fr)
En í kvöld lét ég elskurnar á Bragagötunni elda fyrir mig...ummm...Pizza del Pollo!!
Borgaði þeim í íslenskum krónum!
Annars var ég að horfa á C.S.I Miami í kvöld og þótti það bara hreint ekki leiðinlegt...tvær ástæður fyrir því :
1) Glæpavettvangur þáttarins var sko Miami Grand Prix kappakstursbrautin....I´m a huge race-fan, believe it or not!
2) Þessi maður var gestaleikari! Hann er dáldið hönk , dáldið mikið hönk kannski, eða bara the ABSOLUT HUNK hreinlega!!
Ég er svooo veik fyrir fallegum mönnum!! en þá nota ég mína skilgreiningu á fegurð sem er mjöög margbreytileg, svo ekki örvænta gæskurinn þó að þú sért ekki copy/paste af Jason Lewis ;)
Úr einu í allt annað, ég hef komist að því að ég hugsa allt allt alltof mikið og er með áhyggjur langt út fyrir mitt áhyggjusvið. Gat verið!
Ég er fórnarlamb ofhugsunar! (Semsagt mitt eigið fórnarlamb...) whatever...??
Explain later...fyrir þá sem ekki fatta.
Þetta er sko alls ekki óalgengt vandamál meðal kvenna. Gott að vita.
Við erum allar í kviksendi kvíða, ofhugsunar og geðshræringa.
Þetta er skaðvænlegt!
Amms alveg satt!
Ussususs...vildi stundum að ég væri lítill, saklaus drengur.
Nett kærulaus og "ligeglad" í hinu daglega amstri....og hinum hrikalega stóra heimi...!
Einsog til dæmis núna hef ég áhyggjur af öllu...án gríns!
Þess vegna ætla ég að kveðja í bili....og fara að sofa...fer örugglega að hafa áhyggjur í draumalandi!!
Elska ykkur flest ef ekki öll, kiss kiss knús og kram .....
,, what´s love got to do, got to do with it"
Ja, nú spyr ég ykkur sömu spurningar og TT?

6 Comments:
Víst kann ég þetta að kommenta, skvísa.
Þú ert bara yndisleg og skemmtileg. Sakna þín engin skemmtileg stelpa í hliðinu :(.
Kveðja
Leyndur aðdáandi knús knús
Ha ha ha Sunna mín, ég kannast sko við þessa ofhugsunaráráttu, langt orð maður. Ég á líka við dagdraumavandamál að stríða..... Það er þannig að ég sé lítlegan karlmann og í dagdraumum mínum erum við gift og ég er að velta börnunum okkar fyrir mér. Svakalegt!!! Elska þig Sunna sæta....
ÚÚÚLALA hver er svona líka rosalega leyndur ;) hummm....
Jamms LáraKlára (Surfer-Girl ;)), þessi ofhugsun getur verið kostur og galli! Finnst að ríkið eigi að borga okkur konum extra fyrir okkar breiða áhyggjusvið.
Höfum alltof mikla samkennd eitthvað!!
En það sem við tvær úr tungunum eigum sameiginlegt og hjálpar okkur í gegnum of-hugsunina eru pollýönnu-taktarnir sem við fengum í vöggugjöf :)
Elska þig líka sæta mín, kossar og knús til Ameríkunnar....
jójó , alltaf gaman að lesa þessi blogg þín, og já strákar þurfa líka að hugsa mikið ;) kv. Jason Lewis
Hva er ekkert að gerast hjá þér Sunna mín! Ég vil að þú farir að blogga meira!
Kveðja Sigurbjörg
Tel það nokkuð gott þegar Jason Lewis er farinn að lesa bloggið mitt, og meira segja kommenta á móðurmáli mínu!?? Eða hvað?
Hef þó nettann grun um að þetta sé bara sætur al-íslenskur strákur sem hlustar á Led Zeppelin og ferðast aftur í tímann.... :)
Annars er allt að gerast hjá mér og því enginn tími fyir kreatíft flæði og skriftir....styttist samt í deadline!
Skrifa ummæli
<< Home