.comment-link {margin-left:.6em;}

Sunna Sweet

17.9.04

Social-Sunna....

Hæbb,
var að koma heim af Sólon þar sem við stelpurnar í bekknum vorum að hittast og míngla. Það á líklegast eftir að taka mig allt árið ef ekki bara öll 4 árin sem eru eftir að þekkja alla með nafni . Bara við stelpurnar í bekknum eru eitthvað rúmlega sextíu ....ammm mjög stór bekkur það!! Margar voru að fá sér áfengi en mín var nú bara spök og ætlar að taka verulega á því á morgun í staðinn ;) nóg að gerast þá, því kl. 1700 er kokteill 1 í Landsvirkjun fyrir 2. og 3. ár...svo verður skundað á Mojitos 2 , þar sem kosningar munu fara fram um nýja stjórn ELSA 3 og svo bara eitthvað klassískt, gamalt og gott.
Ætli kvöldið endi ekki með því að ég stundi villt kynlíf með Pharrel mínum fram undir morgun hehehe...smá grín.....en hei allt getur gerst...er bara að spá í framtíðina.....engin veit örlög sín fyrir ....bleble jarí..jarí jibbí jei....
Er að deyja ég er svooo sybbin, þetta er örugglega einhver svefngalsi er talar :) en þannig er mál með vexti að ég er að bíða eftir þvottinum....neyðist til að vaka í hálftíma lengur... afhverju set ég alltaf í þvottavél á miðnætti...þetta er rótgróin venja hjá mér. Þarf að breyta. Hægara sagt en gert!!
Bæbb,

1 Kokteill er annað heiti yfir vísindaferð. Þær ferðir eru tíðar í Háskólum landsins. Þar fara nemendur í heimsóknir til fyrirtækja er kynna starfsemi sína og bjóða veigar og veitingar í leiðinni...ekki slæmt...framvegis verður notað orðið kokteill yfir þessar ferðir...nær sannleikanum.

2 Mojitos er bar/skemmtistaður staðsettur fyrir ofan veitinga- og skemmtistaðinn Apótekið í Austurstrætinu. Sumir kenna staðinn við einn besta kokteil seinni ára...Mojhitos....ummm romm, súraldin, myntulauf, hrásykur og sóda...eitthvað betra??

3 Elsa stendur fyrir The European Law Students' Association og er félag evrópskra laganema og ungra lögfræðinga. Félagið var stofnað á því herrans ári ;) 1981 í Vín af ungum lögfræðingum frá Austurríki, Póllandi, Ungverjalandi og Þýskalandi. Markmið ELSA er að koma á, þróa og styrkja gagnkvæma samvinnu og
persónuleg samskipti laganema og ungra lögfræðinga í Evrópu. Með þessum
tengslum er ætlunin að þjálfa félagsmenn og veita þeim reynslu í námi og
starfi á alþjóðavettvangi.

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home