.comment-link {margin-left:.6em;}

Sunna Sweet

12.9.04

Ferrari-fákar fagna í Monza á Ítalíu...

Eitthvað er hún Sunna Dís sko alls ekki ánægð með sinn mann , kólombíska kyntröllið Juan Pablo Montoya (litir kólombíska fánans prýða nafn kappans) í Ítalíukappakstrinum um helgina. Hann var ekki að standa sig sem skyldi, en honum fyrirgefst vegna þess að hann er bara SEXY!!! Svona er ég góð :)
Rubens Barrichello vann kappaksturinn í þetta skiptið sem er reyndar rosa gaman fyrir hann því þetta er fyrsti mótsigur hans á árinu. Michael Schumacher kom annar inn og því tvöfaldur sigur hjá Ferrari...congrats!
Hefði djö#### mikið viljað sjá aksturinn í Monza en Skaðinn (skaðabótaréttur) átti hug minn allann. Annars getið þið nú líka lesið um aksturinn
á
mbl.is ef þið hafið gífurlegan áhuga, þar koma fram stig ökuþóranna og hverjir eru bílasmiðir hverra.
Vill einhver koma með mér á The Notebook í bíó?? Þarf á svona týpískri Titanic mynd að halda núna...hehehe... Grenja úr mér lægðina :)
Bless í bili...
Verð að láta frasa úr SATC fylgja þessum pistli þar sem að ég er örugglega búin að nauðga fyrstu seríunni til óbóta núna um helgina... ,,why are there so many great unmarried women, but not so many great unmarried men"
muhahaha.....innilega sammála Carrie Bradshaw þar!

6 Comments:

At 8:21 e.h., september 12, 2004, Anonymous Nafnlaus said...

Hellúú , Allveg magnað blogg hjá þér Sunna mín :) Hef ekki séð þau betri. Kv. Einar "bró" Einarsson :)
ps. síðan hvenar fékst þú áhuga á F1 ?

 
At 1:53 f.h., september 13, 2004, Blogger sunnasweet said...

Skynja ég einhverja kaldhæðni í þessu kommenti eða? ;) Ef ekki þá þakka ég hrósið!!
Annars byrjaði ég að fylgjast af alvöru með formúlunni í Frakklandi veturinn 2002, þar kynntist ég heitum kólumbískum aðdáðendum Montoya...sem fóru útum allt að horfa á kappaksturinn...ég smitaðist af þeim og varð mjög svo "devoted" to Montoya. Áður hafði Michael verið minn maður, og þar áður gös ég man ekki einu sinni hvað hann heitir það er svo langt síðan...díses...minnið er vondur geymslustaður!!!
Allavega er ég voðalegur formúlu-fan eins skondið og sú staðreynd kann að virðast!

 
At 12:18 e.h., september 13, 2004, Blogger Ásdís said...

Formulan er leidinlegasta ithrott i heimi, leidinlegri en golf, leidinlegri en fotbolti...

Afsakid neikvaednina...

 
At 1:37 e.h., september 13, 2004, Blogger sunnasweet said...

Þú ert ekki með öllum mjalla stelpukind!! Er Króatía alveg að fara með þig ;)
Formúlan fokking rúlar!!!
Fíla samt alveg sund og gólf líka...

 
At 1:48 e.h., september 13, 2004, Anonymous Nafnlaus said...

Elskan min !!

Betra er seint en aldrei !! Nuna er eg sko buin ad uppgøtva hvernig eg get sent inn kvedju til tin¨, jibby !!

En hvernig væri nu ad bjoda mer upp a grenjumynd svona einu sinni?Bydur mer aldrei i heimsokn bara skil thetta ekki !!!

koss og knus baby

 
At 2:57 e.h., september 13, 2004, Blogger sunnasweet said...

Hef grum um að þetta sé Ragnhildur hin norska sem kommentar hér á undan og fagna ég því að norsarinn sé loksins búin að fatta hvernig kommenta eigi á síðuna ef sá hinn sami er ekki skráður notandi blogspot.com.
Heyr heyr...
Annars hef ég talið að ekki þyrfti ég að bjóða þér í heimsókn mín kæra...mínar dyr standa þér ávallt opnar!! Mitt er þitt ;)
Bið annars að heilsa þér, Jörra og öllum hinum...
Vertu dugleg að læra!!
Mun kaupa fyrir þig bækurnar og setja þær í póst í dag :) Kiss kiss knús og kram

 

Skrifa ummæli

<< Home