.comment-link {margin-left:.6em;}

Sunna Sweet

16.8.04

Tóbakstussur í Heimdalli

Í dag las ég þetta á síðunni hans Palla, gáfnaljós sem er með mér í lögfræðinni og varð aldeilis hissa...þetta eru hugsanir mínar í hnotskurn!! ATH: Verðið að lesa allt!!

Úr stjórnmálaályktun Heimdallar:
Heimdallur hafnar með öllu hugmyndum um reykingabann á opinberum stöðum. Ennfremur er rétt að afnema bann við sölu ýmis konar erlends tóbaks. Telur Heimdallur ennfremur að ýmis höft á auglýsingar tóbaks og áfengis með öllu ólíðandi. Starfsemi nýstofnaðar Lýðheilsustöðvar ber að endurskoða hið fyrsta og draga verulega úr starfssviði hennar.

Þið verðið að fyrirgefa en ég er þessu algjörlega ósammála og skil ekki alveg hvað þeir eru að hugsa.
John Stuart Mill sagði að frelsi einstaklingsins ætti ekki að skerða NEMA ef um sjálfsvörn væri að ræða. Ég fæ ekki betur séð en að reykingabann sé sjálfsvörn. Hvaða hálfviti leggst gegn reykingabanni á opinberum stöðum? Ég er reyklaus og vil fá að vera það á opinberum stöðum, takk fyrir. Fólk sem reykir má drepa sig mín vegna en þá bara heima hjá sér. Ég ætti kannski að sækja um að fá að dæla inn koltvísíringi á opinberum stöðum. Ég meina, það hlýtur að vera réttur minn sem einstaklingur? Já, berjumst fyrir frelsi einstaklingsins!
Páll Heimisson, www.hi.is/~pallhe/


Heyr heyr!!


10 Comments:

At 9:34 e.h., ágúst 17, 2004, Blogger sunnasweet said...

Bara NO COMMENTS?? Whats happenin´ here.....

 
At 10:39 e.h., ágúst 17, 2004, Blogger Kristín María Birgisdóttir said...

Heimdellingar koma mér ekkert á óvart með frjálshyggju sinni. En þetta er veitingastaðir í einkaeign, eiga þá þeir sem eiga þá ekki að fá að ráða??

Svo lengi sem sígarettur er löglegar og allt það þá veit ég ekki með þetta..............ég er á móti reykingum og hef mikið verið að ræða þetta við hann Agga vin minn. Hann er nokkuð klár í þessum rökræðum og hefur nokkuð til síns máls.

Og ég er líka ein af þeim sem á bágt með að skilja áfengislögin er varða auglýsingar á því.

Svo finnst mér fólk ekki HÁLVITAR þó svo það hafi aðrar áherslur eða skoðanir á málunum............að halda því fram finnst mér aftur á móti hálvitaskapur.

 
At 12:23 f.h., ágúst 18, 2004, Blogger sunnasweet said...

Pointið var ekki að fólk sem hefði aðrar áherslur eða aðrar skoðanir væru hálfvitar....neiiii heldur það að það sé leyfilegt að reykja á opinberum stöðum sé hálfvitalegt....skv. ótal rannsóknum virtra manna og háskólastofnana eru óbeinar reykingar ekki svo mikið minna hættulegri fyrir okkur reyklausu en sígaretturnar fyrir reykingamanninn sjálfan. Það er líka staðreynd að sígarettur yrðu aldrei leyfðar í dag ef þær væru það ekki fyrir!!
Enda er það bara mín skoðun að eiturefnin í sígarettunum eigi ekki að skaða aðra en þá sem neyta þeirra....Það ætti að vera mitt frelsi að vera laus við reykinn og ódauninn.....
Eins og JSM sagði ,,frelsi einstaklingsins má ekki skerða NEMA í sjálfsvörn" og þetta er mín sjálfsvörn!!
Held að frjálshyggjufólkið ætti að byrja annars staðar þar sem hið svokallaða frelsi(frelsið til að reykja)stangast ekki á við frelsi annarra einstaklinga (þá til að vera reyklaus...)
Djamm væri kúl án reyksins!!! Ekki satt??

 
At 12:40 f.h., ágúst 18, 2004, Anonymous Nafnlaus said...

Nákvæmlega. Í þetta skipti er ég sammála þér Sunna mín. Fjálshyggju verðru líka að skoða út frá rökum og skynsemi.. Frelsi fyrir þig getur verið fangelsi fyrir mig (eða þannig) :)

 
At 2:51 f.h., ágúst 18, 2004, Blogger Kristín María Birgisdóttir said...

"Hvaða hálfviti leggst gegn reykingabanni á opinberum stöðum?"

Get ekki betur séð en að hann sé að segja að þeir sem vilja leyfa reykingar á opinberum stöðum séu hálfvitar. Eða hvað? Hvað lest þú út úr þessu?

Þetta er einmitt pointið...............

 
At 1:22 e.h., ágúst 18, 2004, Blogger sunnasweet said...

Nákvæmlega!! Einmitt einsog ég skil þetta....en voðalega er fólk viðkvæmt....tek til baka hálfvitans nefnið og kalla þetta fólk íhaldsseggi dauðans....má ekki breyta einu né neinu!! Yrði það ekki bara til góðs fyrir þjóðfélagið ef að reykingar yrðu bannaðar á opinberum stöðum??? Ómengað loft!(svo langt sem það nær) hreinna umhverfi! Ókosturinn væri nú samt að reykingamaðurinn gæti ekki svalað fíkn sinni....en svosem skil ég vel að reykingamenn séu ALGJÖRLEGA á móti þessu, þar sem þessi venja þeirra er rosalega félagstengd...um leið og það yrði bannað myndu reykingar pottþétt minnka í þjóðfélaginu. Við erum búin að sjá hve reykingamönnum hefur fækkað hérlendis síðustu ár eftir að reykingar voru bannaðar á flestum vinnustöðum ....nú sér maður líka fólk út á svölum að reykja!! Vill engin þennan skít inn á heimilið sitt....en á opinberum stöðum er þetta alltílæ...ég segi nú bara wake up and smell the coffee...

 
At 1:26 e.h., ágúst 18, 2004, Blogger sunnasweet said...

Hver er annars þín prívat og persónulega skoðun Kristín....??

 
At 8:38 e.h., ágúst 18, 2004, Anonymous Nafnlaus said...

Mín prívat og persónulega skoðun er að U make me hot girl. Æsist allur upp þegar ég les bloggið þitt, hlakka til að sjá þig í skólanum í haust, þú gerir hann svo miklu skemmtilegri; )
XOXOXOXO

 
At 10:20 e.h., ágúst 18, 2004, Anonymous Nafnlaus said...

WOW á min bara aðdáenda í skólanum, en gaman:-) Er eithvað sem að þú ert ekki að segja mér stelpuskottið mitt??? HE he æi ég bið bara að heilsa þér snúlls, vertu dugleg að lesa

Guðrún Loethen (wannabe)

 
At 11:32 e.h., ágúst 18, 2004, Blogger sunnasweet said...

Bíddu nú bíddu nú bíddu nú við....hvað er í gangi??? Hver skrifar svona gróft komment á síðuna mína...oj barasta...
Hahaha...segir sú klúra ;)
Ef þetta er sá sem ég held að þetta sé þá bara sömuleiðis góði....kem ekki fyrr en 6 sept í skólann :( Ætla að fara að shoppast og djamma í París!

 

Skrifa ummæli

<< Home