Sunnu-dagur
Charlie´s Angels skelltu sér í BORG ÓTTANS á Sunnu-dagskvöldið eftir langa, stranga og leiðinlega vinnuhelgi. Fórum á Vegamót í mat & drykk...tjilluðum þar fram eftir kveldi. Spjölluðum við einhverja bissness-Grikki.
Svo var púlsinn tekinn á helstu börum borgarinnar...þar má meðal annarra nefna....Kaffibarinn (gin&tonic, sætir barþjónar og kreisí hönk dyravörður sem gæti sko alveg verið litli bróðir hans Benicio Del Toro, bara sætari!!)
Kofi Tómasar Frænda ( 2x gin&tonic, einn hönk+ einn af betri plötusnúðum landsins) 0200 Sirra gafst upp!! R.E.S.P.E.C.T.
Prikið (Kúk-klósettstopp ;) mikið hneyksli í gangi....hihihi)
Sólon (bara afþví að Kristín María vildi fara þangað...would never ever go there with only my own free will, enda var ekki hræða þarna inni, jú nema bróðir hennar Diddu mæz) Hverfisbarinn (Hitti þar Senjorituna mína og dönsuðum við duglega við helstu poppslagara fyrri & seinni tíma ásamt fríðu fólki! EKKERT DRUKKIÐ? :O Say what!!!)
Klukkan 0500 voru sumir búnir að vaka í rúmlega sólarhring og ekki lengur í 5. gír ;)
Ég og Krizzie fórum á gististað vor (thanks Gummi) og dóum (ekki bókstaflega) :) en náðum þó að pota í pizzuna hans Hróa Hattar áður. Sá greinilega á okkur aumur einsog Hróa Hetti er einum lagið og bakaði flatböku handa okkur, minn helmingur var með skinku & svepp en Kristín vildi skinku, ananas og xtra ost. Hrói var þó ekki alveg að gera sig, pissan ekkert spés, sérstaklega ekki þegar ég þurfti að borga fokking 25 % álag ...aarrrggg.... Hrói er greinilega bara myth..prump...prump...prump...prump...prump...
Eníhús ....nú er mín farin að bulla...eins og Sunny er von og vísa þegar hún er illa sofin og útlesin!
Vona að þið farið varlega í umferðinni, keyrið undir hámarkshraða, virðið umferðaskiltin og talið ekki í símann nema með handfrjálsum búnaði (Umferðalögin eru mest brotin af öllum lögum landsins í dag, eitthvað til að velta fyrir sér, þar sem við tökum því öll fyrir víst að lenda ekki í umferðaróhappi)
Takk fyrir, Sunna Dís

4 Comments:
Sunna mín....missti af þér á tjúttinu....svindl!
fyndið með umferðareglurnar! Aggi félagi minn lýsir frelsi einstaklingsins mjög skemmtilega í grein sinni á www.uf.xf.is þar sem hann setur reykingarbannið í búning umferðalaga :)
Eldsmiðjupizzan hefði sko pottþétt orðið fyrir valinu ef það hefði staðið til boða!! Pizzan þar með skinku sveppum og rjómaosti er ólýsanlega góð skal ég segja ykkur sem ekki hafa prófað pizzu þar :) jammí jammí fæ bara vatn í munninn....
Annar var fínt í 101 Snara mín.... við ættum nú samt að taka okkur pásu núna fram að skólabyrjun..þá verður víst nóg að gera!! Annars er ömurlegt að lifa heilt sumar aftur án þess að fara í útileigu :( ekki einu sinni sumarbústað! B
Jamms sem minnir mig á það að tala við afa í sambandi við bústaðinn! Vona að afi verði ekki með einhvern rembing :/ segi honum bara að þetta sé í þágu þjóðfélagsins(sem þetta og er) og þá hlýt ég ábyggilega blessun...frá afa sko ekki Guði...andskotinn....er enn ekki að nenna að læra B-
Skrifa ummæli
<< Home