Tíðindalaus vika framan af.....og þó
Sælt veri fólkið og blessað
PÆLING (blessað af hverjum?) Þar sem að ég er nú hálfgerður trúleysingi ef ,,hálfgerður" er hægt að vera í þeim málum....
Segjum frekar að ég sé full efasemda um trúarbrögð vorra tíma og fyrri, þá sérstaklega kristindóminn. Ég bara get ekki samþykkt meirihlutann af því sem Nýja testamentið predikar og kennir, hvað þá Biblían öllu heldur. Ekki misskilja mig, ég er ekki algjör raun-vísinda-hyggju-manneska sem þarf haldbær rök og sönnun fyrir öllu en ...... eitthvað segir mér að Jesú bróðir besti hafi bara verið venjulegur maður og sagan hans sé stórlega ýkt af ásettu ráði. En annars vill ég ekki vera að koma með einhverjar skoðanir og staðhæfingar fyrr en ég hef sjálf komist að niðurstöðu, þar að segja ef það einhvern tímann gerist?????
Semsagt to be continued.....
Annars á ég erfitt í öllu þessu ,,hugsi" mínu.....mótsagnir sjálfs míns eru að drepa mig (ekki bókstaflega) Þannig er mál með vexti að einn daginn er ég staðráðin í að skrá mig úr Fríkirkjunni(frjálst trúfélag ótengt ríkinu en þó nákvæmlega sama og Þjóðkirkja vor), hinn daginn hugsa ég um hvernig ég vilji að athöfnin í mínu eigin ímyndaða brúðkaupi eigi að vera (if ever married :) ) Annan daginn vill ég panta viðtal hjá séra Hirti Magna og ræða við hann um þessi mál en svo fer ég að bakka með þá hugmynd og segi sjálfri mér að það muni aðeins verða pantaður tími í heilaþvætti......úffípúff... Þriðja daginn er mér skítsama og segi sjálfri mér að hætta þessum vangaveltum, en seinna fer ég að spá hvort að ég geti ekki bara hætt í lögfræðinni og skráð mig í trúarbragðafræði og/eða heimspeki við Háskólann?
Eins og ég segi, með allt þetta í hausnum á ég obosslega erfitt með að einbeita mér að náminu... er t.a.m. núna stödd á bókasafninu en EKKI að læra :( er bara að drepast úr áhugaleysi yfir þessum skólabókum en hef áhuga á ÖLLU öðru á sama tíma....hihihi....
Þó að Sunna Dís hafi ekki beinlínis lifað eftir bókstaf Biblíunnar eða orðum Guðs eins og sagt er, þá viðurkenni ég það að meginboðskapurinn er og verður(vonandi) alltaf göfugur....því dettur mér í hug þessi orð ,, Gleymið ekki gestrisninni, því að vegna hennar hafa sumir hýst engla án þess að vita" (Hebr.13.2) Blebleble.....
Annnars segi ég bara verið hress, ekkert stress, bless bless (gamall góður Hemmi Gunn frasi)

2 Comments:
Sunna mín kæra. Við mössum þetta í vetur og það verður massa stuð. Ekkert stress bara hress. Nú getur þú loksins farið og gert þér góð kveld í kóktelum fræðinnar. Og svo verðum við duglegar í KK :) Svo þegar við erum búnar með BA í þessum blessaða ´skóla þá förum við verulega að spá í hvað við viljum gera í framhaldinu. Þangað til.............NO WORRIES
Ummm...þú segir nokkuð! Ég þarf að taka fimm ár :o Get ekki hætt eftir þrjú ár með BA í vasanum, það hefur enga þýðingu í þjóðfélaginu eins og staðan er í dag!! Eftir fimm ár er það cand.mag ;)
Annars get ég ekki beðið eftir að við byrjum í K.K. Verðum nebbla að vera duglegar til að verðskulda alla kokteilana....jammí jammí can´t wait!Sukk og svínarí!!
Skrifa ummæli
<< Home