.comment-link {margin-left:.6em;}

Sunna Sweet

16.7.04

Djúsí sögur frá Spáni...

Complete Diary From Calpe

Dagur 1 Sofið út, sundlaugin testuð og drukkin bjór....
Dagur 2 Sofið út, steik á ströndinni....seltan í sjónum orsakaði örlítinn bruna!
Dagur 3 Sofið út.....slakað á inni með bók í hönd...vildi leyfa roðanum í húðinni að minnka.
Dagur 4 Sofið út, hádegismatur á svölunum með ótrúlegt útsýni.
Dagur 5 Sofið út, farið í Aqualand og rennt sér með lille bro...Althea um kvöldið....æðislegt listamannaþorp!!
Dagur 6 Sofið út, ein í sólbað á ströndina eftir hádegi....hitti sæta spanjóla á ströndinni seinnipartinn sem flautuða alltaf þegar ég gekk framhjá.. ;) ég er svo mikil kroppalína...
Endaði með að djammma og djúsa með þeim um kvöldið og lenti í einu svaðalegasta eftirpartíi sem sögur fara af...ekki rithæft það efni!!
Dagur 7 Sooooofið.....eftir djúsi nótt :) stakk mér í laugina seinnipartinn...út að borða með ma og pa um kvöldið...semsagt rólegheit
Dagur 8 Sofið út, sólbað....Geggjaður matur á Japönskum stað um kvöldið með Guggu og Beggu...svaka show hjá kokkunum þar sem þeir kokkuðu fyrir framan okkur...drakk Saki og borðaði með byrjendaprjónum. Dró Guggu, Lilju og múttu með á ástralskan bar.....drukkið vodka í red bull...sýndir nokkrir Beyoncé danstaktar....annars var aldur gestanna ótrúlega misjafn, mikið af krökkum á 16, 17 ára aldri og svo eldri köllum. Vantaði góða djammfélaga þetta kvöldið því farið á kristilegum tíma í háttinn, eða um 0400....
Dagur 9 Slappað af frameftir degi. Út að borða með San Pedro, einn af spanjólunum. Óspart drukkið af Sangria!!! Kíkti með honum í partí smartí....sukk og svínerí!
Dagur 10 Blablabla....sama og alltaf....sólbað...sangria...
Dagur 11 -II-
Dagur 12 Terra Mitíka, ótrúlega flottur Paramount ævintýragarður hjá Benidorm. Ágætis rússíbanar....varð ansi blaut í nokkrum ;) Alveg búin eftir heilan dag af salíbunum dauðans...
Dagur 13 Hangið með spænska krúinu...útreyktir hipp-hopparar!!
Dagur 14 Heimferð....Flugfélagið Spanair fær nú bara 10 í einkunn hjá mér...

Mörgum finnst þetta kannski ekki svo ýkja djúsí dagbók, en þá vantar líka allt ímyndunarafl því að ég skrifa auðvitað bara hálfa sögu hihihi....
Solong suckers, Sunny sweet says see ya´ll later

1 Comments:

At 4:17 e.h., júlí 17, 2004, Blogger sunnasweet said...

Elsku Snara mín.... í loftkældri íbúð er hægt að sofa og sofa og sofa...ZZZ....zzz

 

Skrifa ummæli

<< Home