.comment-link {margin-left:.6em;}

Sunna Sweet

27.7.04

Binn bissí.... (isl. hef verið upptekin)

Fór með Sirru sætu í skvísutúr til borgarinnar á föstudaginn. Þræddum aðra hverja búð í Kringlunni og enduðum á Kaffitár, drukkum kaffi og kjöftuðum. Svo lá leið í miðbæinn þar sem sest var á Vegamót og snætt dýrindis máltíð og sötrað rauðvín. Hægt að ,,stóla" á æðislegan mat þar á spottprís!! Svo var Súfistinn tekin með trompi....Latte og súkkulaði..ummmm.....sælkerar dauðans sameinaðir!!Hihihi....
 
ÖRSAGA: Eins og svo oft áður vorum við gellur í bílnum á leiðinni niður í 101 að tala um fallega menn (er veik fyrir sætum strákum) en ekki frásögum færandi nema að þar barst til tals einn; Björgúlfur Thor Björgúlfsson, sá myndarmaður :) og þeir sem mig þekkja vel vita að ég er ofsalega veik fyrir honum....oft séð hann í departures & arrivals, aldrei þó nema í FLE (Flugstöð Leifs Eiríkssonar) Eins og áður sagði fórum við á Súfistann á Laugarveginum og þegar ég var við afgreiðsluborðið þá kemur áðurnefndur maður og stendur við hliðina á mér og ég bráðna bara eins og smjörlíkisklessa í potti sem á að fara poppa popp í ... eina sem ég get hugsað um er að ég sé EKKI með gloss á vörunum...arrrggg...hva var ég að spá??
 
Haldið var heim á leið eftir yndislegt kvöld. Fór og hitti Golden Girls heima hjá Sigurbjörgu og þar lagt á lokaráð í sambandi við bryllupið hennar Eydísar (einn meðlimur The great Golden Girls) og Matt. Kíkti svo aftur til Sirrýar með Ásdísi skvís og drukkum þar vín er kennt er við rautt....fórum svo í suðupott menningarinnar..DUUS, Ágætt!
Best var þó að ganga heim í yndislegu veðri undir léttum áhrifum :)
 
Laugardagurinn var nettur frameftir...aðeins kíkt í skólabók til að létta á samviskubitinu (hélt að ég væri orðin samviskulaus í lögfræðinni, greinilega ekki!) Rakað, naglalakkað og fínpússað fyrir kveldið...Fór svo í þetta líka fína og flotta brúðkaup í Bláa Lónið...Elsku Eydís og Matt....innilega til hamingju!! Vel var veitt af víni og mat, ræður og skemmtiatriði voru létt og skemmtileg. Endaði í einhverju stráka-geimi með Skúla hennar Mundu minnar sem var sæmilegt. Kíkti svo á nýja staðinn hans Pálma dántán Kef sem heitir Traffic...hitti þar aðal-skvísurnar og tjúttaði og trallaði eilítið.....Komin heim í ból um 0500....Svaf áreynslulaust til 1600, sem er saga til næsta bæjar??
Rest er ei áhugaverð.....
kiss & miss ya´all ...sunshine

6 Comments:

At 6:51 f.h., júlí 27, 2004, Anonymous Nafnlaus said...

Takk fyrir síðast sexy lady!

 
At 7:15 f.h., júlí 27, 2004, Blogger sunnasweet said...

Who is??

 
At 11:44 f.h., júlí 27, 2004, Blogger Ásdís said...

Takk fyrir helgina skvísa! Átt greinilega einhvern aðdáanda!

 
At 5:54 e.h., júlí 27, 2004, Blogger sunnasweet said...

Segðu Sara segðu!! Get varla beðið vetrarins :) Bíð með óþreyju....KNÚS og aftur KNÚS....
En ég hélt að þú hefði farið austur þannig að ég var ekkert í bandi við þig þegar ég kom í borgina seinnipartinn á föstudag. Stór mistök!! Ertu ekki annars hress? Var að reyna ná í þig í gær á FULLU.....var farin að halda að þú hefðir orðið úti esskan.....

Svo var ég líka að reyna að ná í þig Dísa skvís...farin að halda að fólk vilji ekki tala við mig...gerði ég eitthvað af mér um helgina hummmm ;) hihihi....
Takk sömuleiðis...ertu með í djamm á sunnudagskvöld í bænum...eða á að skella sér landshornanna á milli?? Be in a band a.s.a.p.

Og hver er þessi leyndi aðdáandi?? Nú eins og áður minnist ég einskis skandals um helgina....en það er kannski ástæðan

 
At 6:10 e.h., júlí 27, 2004, Blogger Ásdís said...

Ég er að fara í sumarbústað um helgina... Svo það er ekkert djamm í bænum fyrir mig! Ég ætla að hella mér í bækurnar í staðinn...

 
At 6:23 e.h., júlí 27, 2004, Blogger sunnasweet said...

Er einmitt í skrifuðum orðum á bókasafninu að lesa um lögerfðir....interesting??
Annars er ég að vinna alla helgina, en við skvísur erum að spá í að taka sunnudagskveldið með trompi og mála bæinn fjólubláan að hætti SunnuSætu....gæti orðið litríkt!
Bjalla á þig í kveld snælda mín, verður að svara!!!!!!!!!!

 

Skrifa ummæli

<< Home