Þyngdar-statusinn
Guð minn almáttugur...í dag hefur þyngd mín náð sögulegu hámarki :)
Ég held barasta að ég hafi ekki verið svona mikil bolla í þó nokkurn tíma.
Eins og Kikka myndi orða það...,,fólk verður yfirleitt ekki einu sinni svona gamalt" :) hehehe.... En það eru nú kannki einstaka afdala kellur og karlar í Kákasus löndunum sem verða svona fjörgömul...lets hope!
Annars er ég voðalega heppin því að ég hef útlitið með mér...er andlitsfríð og ber kílóin vel...eða ég lifi allavega í þeirri trú.
Þetta er ENN ekki farið að há mér í bólinu og ég get gengið upp nokkrar tröppur án þess að svitna og verða lafmóð ;)
Læt engann telja mér trú um annað en að ég sé súpersæt skvísa sem sé að meika það í lífinu...en hei Sunna Dís mín kommon; þegar þú ert farin að dæsa í hvert skipti sem þú lítur í spegill, í staðinn fyrir að brosa og setja stút á varirnar þá er eitthvað að!!!! Þannig að nú skal mín taka sér taki.....Hananú!! Sunnatunna.....

5 Comments:
Sunna Dís! Þú er mest æði í öllum heiminum ;) Við eigum eftir að ná okkur í þvílíkt form í vetur!
Hvað er málið með okkur kvenfólkið að um leið og haustið fer að koma þá ætlum við alltaf að gera eitthvað í okkar málum! Fara í megrun og komast í gott form!!! Spurning hvort eitthvað verði úr því hjá manni núna :)
Kv. Sigurbjörg
Ammm sonna er etta bara!
Ætlaði nú að vera komin í form fyrir París en það lítur út fyrir að ég muni ekki fara á shopping spree þar:( ja allavega ekki í fatakaupum. Kemst ekki í franskar stærðir hehehe...en mun missa mig í tösku- og skókaupum ;)
Svo er matur og drykkur sko ekki á spottprís þarna í borg elskenda..Sérstaklega ekki þegar mar vill fara á hipp selebrití staði einsog Buddhabar og Kenzo-bar..þessi ferð verður allt annað en ódýr. Enda er Sunna Skvís alþekkt eyðslukló
P.S. Ég er ekki að fara í megrun....alltof þroskuð fyrir solleis vitleysu :)
Ávallt falleg Sunna mín! Svo verðum við að vera duglegar í KK í vetur! VÁ hvað ég lifi fyrir þetta KK núna, eins gott að við nýtum okkur þetta vel :)
Skrifa ummæli
<< Home