Risin upp
Sælt veri fólkið...Sunna Sæta er mætt á svæðið og það með svaka bravúr...hehehe
Segi svona...hef ekkert verið að eyða annars dýrmætum tíma mínum í að skrifa um ekki neitt. Kom heim frá París á Sunnu-daginn útþynnt og sveitt með skrilljón kíló af farangri meðferðis...mon dieu...eru ekki takmörk fyrir því hve mikið flugvélin getur borið yfir lönd, höf og vötn?? Látum bara nægja að segja að stelpan hafi verið með +70 kíló....
Síðan hefur allt verið brjálað að gera!! Skólinn byrjaður með öllu tilheyrandi. Verð að komast úr handbremsu í fimmta gír ;)
Komin með hina fínustu ferðatölvu...oooo nei frúin fjárfesti ekki sjálf í henni....á svoooo góða forældre að það er stundum lygilegt. Hvar væri ég án þeirra?
Annars er ég bara á fullu að gera fínt hérna hjá mér....kom nebbla að íbúðinni minni einsog verstu svínastíu....oj oj oj kúgaðist og kúgaðist. Þvílikur vibbi!!! En allt loksins að komast í Sunnulegt horf hérna á Eggertsgötunni....get farið að bjóða elskhugunum heim á ný ;) long time no nothin...
Akkúrat þessa stundina er vika síðan Sunna Dís var á tónleikum með Madonnu sinni....gvöööð er enn með gæsahúð eftir þessu frábæru sjón-leika. Vorum náttl bara í flottum sætum...sátum í sömu stúku og Jean Paul Gaultier (alltaf verið hrifin af honum í hvíta&bláa sailor bolnum) og Jean Paul Belmonde (franskur stórleikari)...fullt var af öðrum stórstirnum þarna....mar var bara meira að fylgjast með show-inu heldur en þeim. En það gerði tónleikana ekki verri að vera umkringd sínum líkum ehehe....
Þetta voru geggjaðir tónleikar...hún er svooo flott!! Táraðist oft á tíðum ,,að vanda" og ef ég væri með typpi hefði það verið í standi allann tímann. Við vorum ekki vonsvikin!!
Annars var París bara skemmtun, shopperí, sukk og svínerí út í gegn.....no more details will be shared.
Er orðin þreytt núna og langar í langa, stranga og heita sturtu...ummmm
Blesssssssss

3 Comments:
Ég hef ýmislegt um þennan pistil að segja:
1) Ég ætla rétt að vona að þú sért að grínast með +70 kg.
2) Gangi þér rosa vel í skólanum sæta ;)
3) Til hamingju með nýju tölvuna! Þú verður nú að læra almennilega á hana og passa að hún fái ekki vírus og svoleiðis ;)
4) Glatað með íbúðina!! Fólk er náttúrulega alveg með mismunandi skítastuðul ;)
5) Ég trúi ekki að þú hafir verið rétt hjá JPG á tónleikunum!! Þetta hljóta að hafa verið allra dýrustu sætin?? Þið eruð náttúrulega ekkert eðlilega flottar á því þið stöllur!! Á meðan ég hírist hér í skítaherbergi í Króatíu þá ert þú bara with the rich and famous ;)
6) Elska þig alla leiðina til tunglsins og tilbaka og sakna þín ;)
OOOO.... fékk gæsahúð og tár í augun þegar ég las þetta komment! Miss you sooo much syzta
Miss you to honey!! Thad verdur rosa fjor thegar eg kem heim a klakann :) En annars er thetta kroatiska numerid mitt: +385 989 702 617
Love, Asdis...the man
Skrifa ummæli
<< Home