Sunna Spreðari & Sparigrís
Ætli það sé hægt að vera bæði??
Mig langar nebbla rosalega að vera dugleg að spara og solleis en samt finnst mér svooooo gaman að eyða....
Verð að ná að samtvinna þetta einhvern veginn betur svo það endi ekki með því að "allar" eigur mínar verði gerðar upptækar og látnar ganga upp í himinháa yfirdráttinn minn hjá SpKef...sem ég virðist alltaf líta á sem gjöf eða pening sem ég vann mér inn bara fyrir að vera ég?? Það er dáldið steikt!! Eða hvað?
Annars harla fátt nýtt títt (ehehe)....er bara enn í Lögbergi og les...og raula með mér: ein ég sit og sauma, inni í litlu húsi, enginn kemur að sjá mig, nema litla músin...hoppaðu upp..etc. etc. Muniði eftir þessu??
Svona leikur fyrir litla krakka.
Einhverra hluta vegna er ég með þetta lag á heilanum! Kannski líður mér eins :( (samt eru engar mýs í Lögbergi, allavega ekki hingað til!!
Annars er örugglega margt verra en að sitja og læra á menningarnótt....gæti talið upp fullt..??
Endilega látið mig vita ef ég er að gleyma að linka á ykkur, þ.e.a.s. ef ég þekki ykkur!
Blebbídíblebb...bless, kv. Sunna Spreðari & Sparigrís (& Sukkari ....... )

4 Comments:
Þér á eftir að takast að spara! Bara muna að peningarnir vaxa ekki á trjánum og hvað þá að þeir komi út um óæðri endann! Hehehe... nú er þetta komið út í öfgar hjá mér! En allavega verður þú orðin rich bitch eftir París, átt eftir að kynnast einhverjum milla þar...
Tek þig sko alveg á orðinu....it will be my mission!!
Þetta er persónuleg móðgun...ehehe nei nei segi bara svona...veit allt um mitt litla viðskiptavit..hef varla gerhæfi í peningamálum....þótt 23 vetra sé!
En ef einhver er sparsamur þá er það hún Ásdís mín og það verður ekki véfengt!!
En nú syrtir í álinn þar sem að prófið er á morgun og ég að kúka á mig af stressi....peninga smeninga hvað segi ég nú bara??
Ætti að giftast Andrési aðalönd :)
Ein sem les lögfræðibækurnar af meiri ákafa en Andrésar Önd blöðin...
Þetta hefði kannski átt að vera Jóakim aðalönd, Sunna mín?? Hann er sko þessi gamli, ríki frændi hans Andrésar og tripp, trapp og trupp!! eheh :)
Á að skoða þessa gömlu, hrukkóttu, úttroðnu þarna úti...? U go girl. ;)
kv, anna panna.
Skrifa ummæli
<< Home