Grátt veður....
Í dag er sko komið haust að mínu mati......
Sunna Dís er í lægð í takt við það.
Rigning og smá rok og allt einhvern veginn gráleitt.
Þetta veður hefur einkennt alla vikuna : (
En með jákvæðu Pollýönnu hugsunum sínum hugsar hún Sunna Dís til þess hvað þetta veður er þó helmingi betra en 30-40 stiga hiti í París...úffípúff...maður svitnaði svei mér þá bara við það að hugsa þar!!
Gat aldrei slétt á mér hárið, var alltaf einsog Curly Sue ....Þið getið rétt ímyndað ykkur hvernig það var að fara inn á barina og dansstaðina...
Þannig að eftir að hafa velt öllum kostum og göllum hlýrra- og svo kaldara loftslags fyrir mér, þá hallast ég að því að búa þar sem ég þarf að klæða á mig hita, JÁ HEI.... þið vitið hvað ég er heitfeng!!
Sunna Dís heldur því einskærri gleði sinni.....hún hefur komist að niðurstöðu; veðrið er bara fínt! Er samt í lægð (ekkert neikvætt við það þó)
Er líka södd og sæl, getur maður beðið um mikið meira á þessum síðustu og verstu....?
Ánægð með fyrstu seríuna af S.A.T.C. sem hún keypti sér áðan....er greinilega enn í Parísar-shop-fílingnum :) get bara ekki hætt að versla......fæ meira segja svaka ,,kikk" bara á því að fara út í apótek, ja eða bóksöluna til að kaupa skóladót.....
Þetta eru örugglega alvöru ,,shop-aholic" einkenni!! Eða hvað?
Annars er fátt fréttnæmt skal ég segja ykkur vinir mínir nær og fjær.
Helgin mun líða þegjandi og hljóðalaus....lestur og aftur lestur...ætla að reyna mótívera hugann dáldið (kannski einstaka SATC þáttur inn á milli)
Fæ líka vonandi góða gesti :)
Þið eruð ,,öll" hjartanlega velkomin í besög hvenær sem er..."hóst"
Annars óska ég ykkur öllum frábærrar helgi....reynið að lifa dáldið...ekki vera að spara lífið! (orðið spara, komið af orðinu sparnaður að ég held, er í brúnum lit hjá mér því það er einfaldlega hundleiðinlegt að spara!!)
Bon weekend et bien vivre!!
Gros Bisous, Sunna Sæta

5 Comments:
Þú er nú meira skottið Sunna Dís.
- en nú er bara að búa sig undir haustið og taka því þeygjandi og hljóðalaust að það verða stanslausar lægðir gangandi yfir - við verðum bara að vera duglegar að gera eh annað til að létta lundina, t.d. að fara í sund og hjóla og fara í vísindaferðir, og horfa á vídjó og borða nammi og hafa gaman in general. Ég skal kynna þig fyrir öllum sætu sætu sætu flugnemendunum mínum. híhí
kv. Sara sólskinsbros (eða þannig)
Þetta er alveg frábært blogg hjá þér og það´skemmtilegasta sem ég veit um dúllan mín! Þakka þér fyrir kommenntið, og svo verð ég að segja þér svoldið fyndið, við vorum að æfa sund í nótt !!!!! Við syntum eins og old times og Martin var á bakkanum og sagði svona: Sunna, Sunna, Sunna og hristi bara hausinn, Þú ert alltaf jafn rugluð. Hhehehe
Kveðja Hanna Panna
Hehehe...það var ósjaldan sem að hann hristi hausinn yfir þvælunni í mér og sagði Sunna Sunna Sunna...og hló svo sínum sérstaka hlátri :)Those were the times..
Skrifa ummæli
<< Home