.comment-link {margin-left:.6em;}

Sunna Sweet

4.10.04

Heppí society?

Hvað er betra en Haukur Morthens á angurværu SUNNU-dagskvöldi?
Söngur hans fær hreinlega túrverki dauðans og hálsbólguskít til að gleymast eitt augnablik!
En í staðinn grætur maður bara yfir öðrum vandamálum, svona annars konar vandamálum!! Heimsvandamálunum....hef svo mikið um það allt að segja :)
Annars var margt gert um helgina.....OktóberFest, Prikið, Kaffibarinn þar sem maður tjattaði við hverja stórstjörnuna á fætur annarri, Vegamót (hvað er að SKE þar?? greinilega ekki neitt!) Sýru-Sirkus :) Bítlabærinn var líka heimsóttur og þaðan kom maður að sjálfsöðu endurnærður eftir mikinn og góðan mat og endurheimtan svefn, 65 ára afmæli afa, skírn.
(Eina sem hefði mátt einnig prýða annars frábæra helgi voru EGÓ- tónleikarnir á lau. á Nasa)
Þakka samferðarmönnum mínum um helgina kærlega fyrir góðar stundir!
Kiss kiss knús og kram til þín og þín og þín og þín!!!
Já og ekki má nú gleyma verslunarferð í Kringluna með Bróður mínum Birni ;) (love you too much) Þar var trallað og skemmt sér á eyðslufyllerí....núna á ég líka gull- og silfurskó jíbbííí...takmarkinu í lífinu er náð.... muhahaha...

OKI...vísa í pistil minn "Ég á bágt" ritaðan 21. sept síðastliðin...
Hef komist að því að mitt "fetish" í lífinu eru skór.....(kannski ástæða fyrir því að uppáhalds barnaefnið var SHOE-PEOPLE )
Annars vorum við systkinin að spá í hamingjunni/einlægninni/gleðinni í þjóðfélaginu í dag....er þetta ekta eða er þetta feik?? Hvernig veit maður það??
Maður sér náttúrulega mun á extra-breiðu-brosinu sem mætir manni í 10/11 hérna á fyrstu hæðinni og sms-ið sem Dominos sendir manni þegar maður fær heimsenda flatböku : Dominos pissan þín er lögð af stað og mun koma innan skamms ble bleble búbbídíbú..etc etc....
Það var feik síðast þegar ég vissi, bara "pjúra" sölumennska sem er svo sem gott og blessað...reyndar líka hrikalega fyndið!! Á alltaf svolítið erfitt með að djóka ekki í liðinu í 10/11 híhíhí.... notfæra mér liðlegheitin..gá hve langt ég næ...hummm??
En svo er það svona oooo þú ert svo sniðug-frábær-dugleg-skemmtileg-klár-sæt og allt það sem alltaf er verið að tvínóna við mann...hvort sem það er edrúmennska eða undir áhrifum.. :)
Hvernig veit ég hvort að einhver sé hreinskilin og einlægur eða bara svona rosalega yfirborðskenndur....er hann í alvöru heppí eða svona líka svakalega plat heppí???
HVAÐ ER MÁLIÐ?
ÆÆÆÆ ég er kannski að flækja hlutina of mikið að hætti annars kynsins (stundum held ég að ég hugsi allt allt alltof mikið)...en þannig er það bara ...ég ER allavega hreinskilin og einlæg!!!
Annars er ég hressari núna því nú hljómar HÆ MAMBÓ með Hauki mínum í spilaranum :)
Hver er ekki heppí þegar það lag ómar??? JAA ég bara spyr...
Krúsímunda kveður...

5 Comments:

At 4:12 f.h., október 04, 2004, Anonymous Nafnlaus said...

Ja hann Björn er vandræða barn og þú verður að hafa Hemil á honum! Kv.Einar ;) ps. Takk fyrir Jakkan

 
At 12:05 e.h., október 04, 2004, Blogger sunnasweet said...

Det var så lidt skat :)
Farðu þér nú ekki að voða....

 
At 4:25 e.h., október 04, 2004, Blogger sunnasweet said...

Þessi athugasemd hefur verið fjarlægð af stjórnanda bloggs.

 
At 4:29 e.h., október 04, 2004, Blogger sunnasweet said...

What!! Ertu ekki að "kidda" mig :)
Hvítt á svölunum...?? Hummm.... farin að halda að Kiddi sé að byrla þér eitur eða eikkvað...
Annars elska ég þetta lag...það er Sunnu-dagsmorgun... tralallala...voðalega ljúft!!
En núna er ég að hlusta á gamla Coldplay, Parachutes....ummm hríslast um mig sæluhrollur...(Sirrý og Ásdís fatta mig) :)

 
At 4:53 e.h., október 05, 2004, Blogger Ásdís said...

I love you... Gangi þér vel í vikunni, ég hugsa til þín ;)

 

Skrifa ummæli

<< Home