Drama queens...
Jedúddamía....ég er svo ánægð með daginn í dag!
06.30 Drattaðist loks á fætur, í sturtu, setja oní tösku, borða skyr, hella upp á o.s.frv....
07.30 Fór í þvottahúsið til að sækja sængurfötin mín, vildi sko ekki hafa þau lengur en yfir hánóttina...just in case :) alltof flott til að láta einhvern kúkalabba sem á ekki eins flott og samstæð rúmföt stela þeim....
08.00 Hjólaði af stað í skólann, kom útgrátin sökum mikils mótvinds. Samt tiltölulega stutt leið..
08.15-11.00 Skaðabótaréttur....svakalega skemmtilegt og sæmilega fljótt að líða.
11.15 Mín hjólar heim í blíðskaparveðri.
11.30 Byrjar að læra og er í stuði. (þó erfitt að einbeita sér í svona dýrindis veðri)
12.00 Fékk mér kjúkling í pestó (afgangur) og salat ...slurpp
13.00 Gummi kom færandi hendi með KaffeLatte a la Kaffitár....ummm made my day!
14.00 Lokaði mig inni í kompu og hélt áfram að læra þangað til Charmed byrjaði, horfði með öðru auganu, talaði í síma og útbjó snarl pour le diner.
20.00 ER (Bráðavaktin) brillíant þáttur...hamingjutár féllu...soo sentimental...ha???dramaqueen...who me...aha....
21.00 America´s next top model ....talandi um dramadrottningar....Love it!
22.00 Mín sýndi aga og slökkti á tv og fór að læra...."stabilitet" er alveg að drepa mig!!ehe...
00.00 Nú sit ég og drekk Pina Colada te frá Te&Kaffi sem ég keypti einhvern tímann í vor en aldrei smakkað...kominn tími til. Ekki eins sætt og ég bjóst við en mjög gott og lyktin...jammí!
00.30 Áætlaður háttatími :) Ekki seinna vænna.....
Bonne nuit mes amies

4 Comments:
Ég er ekki búin að borða skyr né pestó í meira en sex vikur. Ég hef heldur ekkert horft á sjónvarpið í sex vikur, hef ekki sofið með mín hreinu fínu rúmföt í sex vikur, ekki hjólað í sex vikur og ekki séð þig í sex vikur!!! Hvað er að gerast???
Eru þetta ekki bara örlög eða eitthvað...hummm ??
Gvuð trúi ekki að þú sért að koma heimm eftir 2 fokking vikur...mon dieu..get ekki beðið...
Ég er í djammpásu þangað til og ætla að læra einsog hið mesta "brein" ....Það verður þvílík gleði :)
P.S. Býð þér í kjúkling í pestó og skyrbúðing í dessert....glápum á tv! Þú verður að sjá America´s next með Tyru Banks...algjört möst
Ég mæti í kjúlla og skyr! Engin spurning ;) Love you
Skrifa ummæli
<< Home