Rólegheit....
Ég er á bókasafninu á laugardagsmorgni, ekkert þreytt, ekki vottur af þynnku og engin eftirsjá!! Þetta segir allt sem segja þarf!
Vanalega er einhver þreyta í gangi, þynnka og eftirsjá....
En NEI ..fyrir helgi ákvað Svannsí að venda kvæði sínu í kross (segir mar það annars ekki?) og fara til Keflavíkur-Kaupfélagsins og njóta nálægðar náttúrunnar...
Semsagt "family-time"
Koma svo til borgarinnar á Sunnu-dag sem ný og betri manneskja!
Annars hefur þetta á daga mína drifið hérna í Bollywood....
-Saumaklúbburinn "GoldenGirls" kom saman í dýrindis mat hjá Sigurbjörgu á fimmtudagskvöld...þar var að vonum hlegið dátt og dansað saman....
Tak for sidst guldpiger.."Det var Jörgen og Noller godt"
-Setið hef ég á Bæjarbókasafni Reykjanesbæjar og lesið mig til um ýmsar reglur skaðabótaréttar ...margt kunnuglegt fólk er þar á vappi og kaffi á boðstólum....eitthvers sem ég sakna mikið og vantar í stórborgina mína!!
-Sofið með litla bróður mér við hlið á pínu lítilli dýnu...innan um kubba, skrilljón litrík plastdýr, fullt af mismunandi bílum og stórra kalla einsog Hulk, Spiderman og Superman.....gerist ekki mikið betra..já og öruggara!!
-Sofið ráðlagðan 7 klukkutíma svefn ;)
-Svolgrað í mig ýmislegt góðgæti úr ísskápnum á Skólavegi...hehe...
-Stefnan er svo þessa stundina að læra fram eftir degi, kíkja svo kannski á rúntinn út á Garðskaga og anda að sér svölu sjávarloftinu, taka smá krús-kontról á nýja jeppanum, og kíkja kannski í eina heimsókn eða svo til gamalla og traustra vina...sem eru ávallt hérna þegar maður snýr heim...ég finn svona ákveðna öryggistilfinningu þegar ég sit á heimilum þeirra....stöðugleiki og rólegheit... Svona "I´m home" fílingur!!
Annars segi ég þetta bara gott í bili og vona að þið njótið helgarinnar......í faðmi þeirra sem eiga ykkur svo sannarlega skilið! Kiss kiss knús og kram
Læt hér fylgja með lítinn gullmola eftir engan annan en Gullmolann sjálfan Guðmund Steingríms...
,,Auðvitað eru allar skoðanir jafn réttháar, það er bara allt þetta kjaftæði sem er að fara með heiminn til fjandans"
Hvernig er ekki hægt að elska þennan mann útaf lífinu... :)
Skylda fyrir sannleiksunnendur að horfa á Sunnu-dagsþáttinn á Skjá 1 á morgun kl. 11.55-13.00...
Það er bara eitthvað meira en lítið sexí við þennan mann, hann liggur svo innilega ekki á skoðunum sínum og er hrikalega fyndinn, þ.e.a.s. Gullmolinn!

5 Comments:
Hæ skvís, hefði nú alveg viljað fá þig í heimsókn um helgina hefði ég vitað að þú værir fyrir sunnan:o)
Er að fara í óvissuferð með Duus á morgun og þess vegna get ég ekki rölt yfir til þín;o(
See U skvís og bið að heilsa í bili
Kv...Badda og co
Gvuuð Guffi ég ætla rétt að vona að enginn dæmi mig út frá vinum mínum :)
Annars er þessi hrifning mín á manninum bara eitt af þessu "getbaraallsekkiútskýrtafhverjuégerheltekin" thing!
Hann er bara yfirleitt fyndinn, sexí og klár...punktur og pasta!!
Hann var samt ekki alveg að hitta í markið í þættinum áðan...horfðiru á? Eitthvað grár og tekinn greyið...
:) Virkar ansi góð helgi. Mín var líka góð, hundleiðinlegt veður hér í borg þannig mín ákvað að skella sér í ferðalag með góðvini mínum honum Edda. Fórum á Skyhawk fljúgandi á Akureyri í gær þar sem hvar blankalogn og blíða. Borðuðum með Fjólu og flugum svo á Mývatn, kítum við á Egilsstöðum í kaffi og skoðuðum Kárahnjúka, Kverkfjöll, Öskju, Herðubreið ofl. úr loft. Þurftum svo að skella okkur á blindflugsheimild í Borgarfirðinum til að komast í suddann hérna. Lífið er allt miklu betra eftir svona helgar..
Gott fá þig aftur í bæinn!
Stundum væri ég svo til í að geta flúið þenna heim sem við lifum í og flogið á braut háloftanna...
Ætli ókyrrðin sé samt nokkuð minni þar en hér...
Saknaði þín líka...
Post a Comment on this
Verbal text hypermess
No stress, broad said Bless Bless
Care Bear state of consciousness
Tonight I made a beat
that's that leave it all behind
hermit style
fuck the world type of retreat
Tonight I speed dialed
this broad that's on file
maybe I can chill for a while
yap rap and cop a smile
Had me running across a field yelling
97.7 for sure
not to be demure
memories now that's pure
Sunna...peace...drop the needle on a record will ya...
Skrifa ummæli
<< Home