.comment-link {margin-left:.6em;}

Sunna Sweet

21.10.04

Viskuperlan Paulo

Ég hef nú hitt margt frægt fólk um ævina, og ennþá meira af minna frægu fólki, en sjaldan hef ég tekið þéttingsfast í hægri hönd þeirra og daðrað einsog mér væri borgað fyrir það :)
Í gær beið ég í klukkutíma biðröð til að hitta brasilíska rithöfundinn Paulo Coehlo og fá áritaða nýjustu bók hans ellefu mínútur, sem er mest selda skáldsaga í heimi árið 2003...
Það var orðið ansi heitt í Mál & Menningu þar sem margir flyktust að til að berja meistarann augum og fá áritun..hélt á tímabili að það myndi líða yfir mig...andaði svo ótt og títt!
Fannst eins og ég væri að fara hitta Heilagan anda eða eitthvað... hahaha...
Emotional mini-drama eða hvað??
Hefði alveg beðið í fleiri klukkutíma en einn til að fá áritun og tækifræri til að daðra við þennan ótrúlega mann, sem hefur skrifað hvert meistaraverkið á fætur öðru...
Mér finnst svo ótrúlega sexí þegar menn eru svona hálfgerðir ofvitar síns tíma...
Gáfur heilla mig...
Mæli eindregið með lestri bóka hans...snertir hjarta manns á marga vegu.
Alkemistinn snerti allavega mitt hjarta all-svakalega
Hann er algjör viskuperla!!

Annars mætti kennarinn ekki í tíma í morgun, alveg einsog ég...hehe...næ svooo miklum tengslum við Hugtaka-Björn (kennarinn minn í stjórnsýslurétti) að ég finn það á mér þegar að hann ætlar ekki að mæta....ekki fyrsta sinn sem þetta gerist. Þægilegt!! Hentugt!!!

Stúdíó-ið var þrifið hátt og lágt...ó men ekki veitti af því, ryk-skrímsli útum allt (ekki bara undir rúmi).... Verst að allir elskhugarnir eru erlendis...æææ finn mér fórnarlamb um helgina :)
A woman with a plan!!

ÁsDísSkvís hefur verið endurheimt frá Króatíu....jee beibí! Loksins fæ ég kúru-bólfélaga!! Hihi.
Það verður sko ekkert djamm&danssvelti um helgina...hell no! Málum bæinn bleikan!!

Gummi Darling eldaði fyrir drolluna hátíðarkvöldverð, aha, Bayon skinku í rauðvínssósu og uppáhalds salatið mitt.....hreint ekki amalegt að þekkja svona menn sem elda oní mann óumbeðnir...
Mætti halda að það væru komin jólin.
Horfðum á Kill Bill, volume 1 (átti alltaf eftir að klára fyrstu).
Þarf svo a horfa á volume 2.
Uma Thurman er über kúl gella!! Samt laaangbest í Pulp Fiction....aaaaa og John Travolta...namminamm...break me up a piece of himmmm...ummm

Holla at ya´ later, Foxy

6 Comments:

At 5:03 e.h., október 22, 2004, Anonymous Nafnlaus said...

Ja þessi bók hans 11 mínútur er víst algjör snilld...ég ætla sko að lesa hana við tækifæri....:)

Góða skemmtun um helgina sweety...hver veit nema við hittumst down town ;)

Kv emo

 
At 6:00 e.h., október 22, 2004, Blogger sunnasweet said...

Jamms hún lofar góðu...ekki verra að hún sé árituð :)

 
At 6:16 e.h., október 22, 2004, Anonymous Nafnlaus said...

Ja flott eins og altaf later Einar ;)

 
At 9:21 e.h., október 22, 2004, Blogger Lára Hrund said...

Hiii Sunna min.... Gaman ad vera svona tengdur kennaranum, tu aettir ad reyna beita tessum tengslum i ad stjorna tvi hvenaer hann kemur og hvenaer ekki.... Eg vildi ad eg gaeti tetta.

 
At 7:14 e.h., október 23, 2004, Blogger sunnasweet said...

Þú segir nokkuð...ekki kölluð LáraKlára fyrir ekki neitt :) Þarf að fara praktisera svona hugsanatengsl við hann Björn kennara...jafnvel aðra kennara! Haha...
Svo er etta allt kannski bara ein allsherjar tilviljun??

Hvað langar þig í ammælisgjöf litli bróðir...kannski einhverja hönnun frá Nonna Sæm??

 
At 6:37 f.h., október 24, 2004, Blogger sunnasweet said...

Mér finnst það frekar niðrandi að kalla kallangann Björn Bollu, vill frekar kalla hann Hugtaka-Björn einsog hann "ipmraði" á sjálfur....hann er með hugtök fyrir allt og stór sem BJÖRN!! :)
Annars er á stefnuskránni að mæta í alla tímana í næstu viku, finn á mér að það verða engin veikindi whatsoever....blebbidíblebb....farin að sofa

 

Skrifa ummæli

<< Home