Stekkjastaur
er fyrstur jólasveinanna.
Hann fer af stað þrettán dögum fyrir jól og hefur fyrir sið, á leið sinni til byggða, að skakklappast í fjárhúsin.
Hann reynir að ná sér í sopa af sauðamjólk, sem honum finnst ósköp góð.
Sú heimsókn endar þó oftast með ósköpum því að kindurnar verða alveg ærar.
Vesalings Stekkjastaur heldur þá áfram án þess að fá minnsta dreitil, því hann er svo stirður.
Já, hrakfallabálkur er hann Stekkjastaur.
Aðeins 13 dagar til jóla :)

2 Comments:
Reyndar komin sá tólfti og því bara 12 dagar til gleðinnar...
Segjum tvær....hlakka svooo til jólanna og vorsins ;)
Þá mun lóan koma til Oslóar og gera allt brjulet!!
Skrifa ummæli
<< Home