.comment-link {margin-left:.6em;}

Sunna Sweet

8.12.04

Prófatíð-jólahátíð...

Það fer ekki framhjá mér að desember er mánuður prófa og jólahalds, sem þýðir að ég sný sólarhringnum algerlega við, verð rosalega meyr (einsog SunnaSweet sé ekki nógu sentimental fyrir) horfi á dvd sem aldrei fyrr, kveiki kertaljós, borða piparkökur og mandarínur í tonnavís, hengi upp glósur á alla spegla, skápa og veggi, skrifa jólakort til útlanda, tel dagana niður til aðfangadags, ígrunda vel hvað ég ætla gefa hverjum o.s.frv.....
Semsagt nóg að gera hjá minni!!
Samt alls ekkert stress í gangi...er alltof róleg í tíðinni fyrir eitthvað stress!

Hef ákveðið að birta jólagjafalistann 2004 á alnetinu...er svo nýjungagjörn :)
Ef gjöfin er frátekin er stjarna fyrir aftan hana, *

1. Tivoli-græjur eða plötuspilara (ma&pa) *
2. Karen Millen leðurstígvél (skærbleik) Karen millen fjaðratösku í stíl ;)
3. GSM (daddí kúl ætlar að gefa mér solleis) *
4. Bækur...óendanlegur listi...
5. Geisladiska og plötur...einnig óendanlegt...
6. Dvd-diska...t.d. Dirty dansing!
7. Serírur 5 og 6 af Sex and the city.
8. Scrabble, orðaspilið.
9. Salsa-námskeið í Kramhúsinu...óska einnig eftir dansfélaga!
10. Pífulak á rúmið mitt.
11. Kerti & spil að sjálfsögðu ;)
12. Newark mixer og turntables...(alls ekkert svo dýrt ef þú ert á leiðinni to U.S.A.)
13. Helmut Lang swimmingbag
14. "be a bag" tösku með mynd af englunum mínum...

Listinn getur breyst eftir veðri og vindum...

4 Comments:

At 12:28 f.h., desember 09, 2004, Anonymous Nafnlaus said...

Það er ekkert smá :) skal gá hvað mamma og pabbi gefa mér mikin penge fyrir gjöfinni til þín spennnóóó :P

 
At 12:38 f.h., desember 09, 2004, Blogger sunnasweet said...

Haha...ætli þú verðir ekki bara að gefa mér nr. 11 kæri bróðir....eða fara í kolaportið og grafa upp góðar plötur!!

 
At 9:47 f.h., desember 09, 2004, Blogger Ásdís said...

Það er naumast SvakaSkvís!!! Helmut Lang, Karen Millen, Kramhúsið... úff púff

 
At 2:05 e.h., desember 09, 2004, Blogger sunnasweet said...

Haha... ég kalla þetta "designer-drug" fyrir þá sem eru veikir :)

 

Skrifa ummæli

<< Home