Missy Bissí eða Missy Elliot
Yo Yo Yo word up...long time no nothin´ my brothaz n´siztah
Bin só bissí (fólk má nú efast um það) að ég hef bara ekki haft tíma til að skrifa neitt en það hefur ýmislegt á daga mína drifið síðan síðast..smá preview...
Ég var t.d. einstæð tveggja barna móðir í Keflavík síðustu helgi, þar sem ma&pa fóru erlendis til að endurvekja 20 ára gömul bryllups-móment.
Var alveg hörku mom! Badabúmmbúmm...
Þvoði þvott mörgum sinnum, las sögur fyrir háttinn, fór tvisvar í bíó, fór á norræna bókmenntasögustund, út í búð að versla, á tjörnina að gefa öndunum brauð, eldaði oft mat, pantaði líka mat, fór í matarboð, heimsóknir líka, horfði á dvd, fór á kaffihús, fór í hárþvott&blástur, tók til í húsinu og margt fleira...yfirleitt alltaf með fjögurra árra snúð í eftirdragi. Sem er ekki til að auðvelda hlutina en gerir þá samt sem áður skemmtilegri. Komst yfir þetta allt saman á einni helgi...SúperSunna in da house!
ATH: Ekki gera ykkur vonir um að ég verði svona góð húsmóðir í framtíðinni..a a No thanx!!
Fór í jóga til að ná upp fyrri liðleika og andlegum styrk fyrir komandi prófatíð/jólabókavertíð.
Svo hef ég verið að flokka tónlistina mína og hef rekist á ótrúlega fyndna og hallærislega diska :)..löngu tímabært verk það! Skelfilegt hvað ég fann mörg hulstur tóm.."snökt"...ég ekki skilja??
Hitta og digga stráka að sjálfsögðu ;) (always the same)
Heimsótti Önnu í Grænuhlíð (reyndar Ásdísi en hitt hljómar einfaldlega betur) þar sem hún var að flytja inn í voða kósí íbúð sem okkur finnst vera heill himingeimur en er bara rétt um 60 fermetrar, þar sat ég í mestu þægindum/hægindum með hvítvínsglas í annarri og ost á kexi í hinni. Hjólaði svo heim í snjóbyl og hélt ég yrði úti en barðist og komst heim heilu höldnu....heit sturta og heitt kakó dugði til að fá yl í kroppinn...þarf engann karlmann!! Hnuss...fusss...
Kokteill hjá sjálfstæðisflokknum þar sem að mín var bara spök...að vanda? Leiðinlegt.
Út að borða í gær avec la famille, ekki þó yngsti dúddinn, og leikhús þar sem við sáum Eldað með Elvis...var ljúft! Allt í boði...jessörí!
Svo núna loksins í dag er ég að gera góða tilraun til að lesa og glósa, og svei mér þá, mér finnst það bara alls ekki eins slæmt og ég hélt það yrði!!
Er reyndar að gera margt annað líka, einsog að hlusta á tónlist og skrifa massa góðan dansdisk fyrir kvöldið. Þar sem hinar víðfrægu GoldenGirls munu hittast í geimi hjá henni Glógló..þar verða væntanlega góðar veitingar og gerjaðir drykkir á boðstólum...
Einnig er planið að prufa Cube Cranberry Cosmo drykkinn sem Daddí kül keypti handa delpunni sinni :) namminamm....
Svo er ég náttl af og til að tjatta við nokkra á msn (bara til að halda smá kontakti við umheiminn sko) einnig er ég að skrifa þennan póst, drekka kaffi og glugga í blöðin..úfff...er svo fjölhæf!!
Jæja er alveg að pissa í buxurnar og ætla því að hætta og skella mér á klósettið hérna á bókasafni Reykjanesbæjar...miss ya´ all
P.S. Tók þetta próf áðan ...,,How kinky are you"?
Fékk ekki viðunnandi niðurstöðu, þó yfir meðaltali : ( need some help I guess to keep my reputation!!! Stundum erfitt að vera stök! Word up

3 Comments:
Blessuð Sunna mín! Var ekki gaman í gærkvöldi? Ég var búin að hlakka þvílíkt til því ég lyfti mér frekar sjaldan upp um helgar og þá akkúrat núna þurfti ég að fá niður.... :( en svona er þetta. Var djammað mikið? Komdu nú með einn góðan pistil um þetta kvöld!
Hvenær er svo næsti saumó og hjá hverri?
KV. Sigurbjörg
Hún er nú reyndar RÚMLEGA 60 fm!!! Og hún er ennþá heill himingeimur!!! Hahahah ;) Miss you sunshine...
Kveðja,
Anna í Grænuhlíð
Það var æðigæði hjá Glógló...vel veitt að vanda og skemmtilegar myndatökur hehehe...
En getum sagt að stemmingin hafi ekki verið jafn góð downtown Kef-city ....kannski er mar bara of góðu vanur??
Skrifa ummæli
<< Home