Sundur og saman
Hrærivélin hrærir
í hjarta mínu strengi.
Hún hrærir bara og hrærir
og hefur gert það lengi.
Ekkert lík við erum
en hvað það er skrýtið:
Þótt ólíkt allt við gerum
við elskumst meira en lífið.
Ég gátur heimsins greini
og grisja lífsins undur.
Í ró og þögn ég reyni
að rekja þræði sundur.
En fátt er hún víst fróð um
og finnst það langmest gaman
með hamagangi og hljóðum
að hræra öllu saman.
Las þetta í Óðhalaringlu, bók sem samanstendur af þremur kvæðabókum sem Þórarinn Eldjárn hefur gefið út, þær eru Óðfluga, Heimskringla og Halastjarna...hver man ekki eftir þessum frábæru bókum myndskreyttum af Sigrúnu Eldjárn. Er ekki minna heilluð af kvæðunum í dag en áður...fann þetta skemmtilega ljóð eitt kvöldið er ég las fyrir Egil Darra áður en við fórum að sofa...og ákvað að birta það í staðinn fyrir eitthvað bull úr hausnum á mér, því mér líður akkúrat svona þessa dagana....
Túlkunin er samt væntanlega á þína eigin ábyrgð....

4 Comments:
þetta er virkilega fallegt ljóð. húmor og alvara í einum hrærigraut. finnst skemmtilegt að lesa svona blogg frá þér! kiss,knús og kram!
Þú ert hrærivélin í mínu lífi, algjörlega!
Toi aussi dans ma vie :)
Tu me manque beaucoup! (gleymi alltaf þessu helvíti)
In love my dear?? Skemmtilegt og fallegt ljóð :)
Skrifa ummæli
<< Home