Sunna´s survival guide
Í gær bauð Palli mér með sér á vínkynningu á Vínbarinn. Kynntumst ítölskum BOLLA vínum..hehe fannst nafnið alveg ótrúlega flott og viðeigandi :)
Einnig smökkuðum við á ítalska jólavíninu sem er bara gott!! Desertvínin eru líka skuggalega góð...bragðlaukarnir fóru alveg á fullt! Nú mun ég alltaf sörvera eftirrétt ásamt sætu desertvíni í mínum matarveislum, sem eru náttúrulega alkunnar fyrir gleði og meiri gleði.
Eftir tveggja tíma fróðleik um ítölsk&kalifornísk&desert&lífræn vín var hungrið farið að segja til sín hjá vínsmökkurunum og við skokkuðum yfir á Apótekið til að snæða. Það er nú varla frásögum færandi, en þegar að við erum komin inn og einn þjónninn að fylgja okkur til sætis gerist eitthvað óútskýranlegt og ég dett kylliflöt á gólfið. Ever so less slightly elegant!!
En mín er snögg á fætur einsog ekkert hafi í skorist og sest og pantar með deitinu sínu (date-night every night).
Eftir að hafa drukkið fordrykk, borðað dýrindis mat og kyngt með góðu rauðu ítölsku, ákvað mín að skella sér á salernið fyrir ábætinn...viti menn; ég gat varla gengið, svo snúinn var hægri fóturinn. Þurfti virkilega að bíta á jaxlinn og anda inn og útum nefið til að halda haus og ganga einsog Beyoncé ;) Its much more important to look good than to feel good!!
Eftir góðar stundir var Apótekið kvatt og haldið heim á leið til að glápa á Bridget Jones´s diary, hlægja og rifja upp fyrir föstudaginn þegar Bridget Jones, the edge of reason verður frumsýnd í kvikmyndahúsum landsins...ooo get ekki beðið...elska Hugh Grant og Colin Firth ummm.....Hverjir eru með? Fjölmennum! Kennarar!! Haha smá íronía!!!
En úr einu í annað, í dag er nú merkilegur dagur fyrir margar sakir gott fólk....
Sæti sundkappinn Alexander Popov á afmæli....sendi kossa og knús á hann.
Martin Rademacher á líka afmæli, hann er sko aldeilis ekki minni maður en Alex og merkilegur fyrir t.d. það að hafa verið laaangbesti sundþjálfarinn minn í gamla daga og góður vinur minn, vonandi til eilífðarnóns. Sendi honum, Beate, Kim Líf og Tom mínar bestu kveðjur.
Algjör auli að senda ekki afmæliskort....
Svo má ekki gleyma sjálfu þjóðskáldinu, honum Jónasi Hallgrímssyni, sem hefði orðið 197 ára í dag, ef á lífi. Því er dagurinn 16. nóvember tileinkaður íslenskri tungu. Gott mál!
Ætla í tilefni dagsins að reyna að vanda tal- og ritmál mitt og fá mér köku og kakó :) til heiðurs afmælisbörnunum! Finn mér alltaf tækifæri til að fagna!!
Eins og veðrið hagar sér er bara mál að halda sig inni í flónel náttfötunum og hafa það gott...þó væri nú líka hressandi að fara með snjósleða út og leika sér, búa til engla í snjóinn, snóbolta og snjóvirki...koma svo inn með eplakinnar og sötra SwissMiss og maula kókossmákökur (reyndar hindrar bólgin fótur mig í hlaupum og fíflalátum)
Jæja Woody Harrelsson er í heimsókn hjá Jay...ætla aðeins að kíkja á kauða, hann er með svo sjarmerandi bros ;)
Minni ykkur svo á að mæla ekki lífið í greind heldur gleði!!
Love from the zha zha zhu....

7 Comments:
Elsku Sunna mín þú ert yndisleg og ég dáist ávallt af lífsgleði þinni og það smitar mig yfir höfin blá og eins og eina heimsálfu, takk fyrir að ver þú Sunna mín.
ææææ....hættu nú að detta Sunna Sæta. Ekki nema þú dettir alltaf eins og B.J.
Haha... ég er einmitt alltaf svo heppin að detta á svona stöðum einsog skemmtistöðum eða veitingahúsum....ákaflega skemmtilegt!!
Sunna! Egill Darri er mesta krútt á vf.is!!! Hann er svo sætur ;)
Já Sólrún, ég held að þetta sé ekki týpíski námsmanna-lífstíllinn sem ég lifi. Er alltaf að reyna að minna mig á að lífið verður ekki alltaf Rauðvín&Camenbert :)
Annars er Palli góður vinur minn. Hann er með mér í bekk í skólanum. Eigum ótrúlega vel saman, eitt skilur okkur þó að, og það er kynhneigðin.... :/ viljum sama kynið!
Semsagt Martini with a twist ;)
Egill Darri er mesta krúttið. Ef þetta mun vera eins með hann og mig, verður hann aðeins sætari með hverju árinu sem hann eldist hahaha....
Hæ sætasta !!
gud gud...gleymdi mer alveg um daginn !! vá hvað lífið mitt er eitthvað flókið og erfitt get ekki munað eitt eða neitt !!! Fer bráðum að hringja í þig ástin min....
MISSYA
Hilsen fra Oslo
Skrifa ummæli
<< Home