KaffiKroppurinn...
Klukkan er 05.43 og ég er enn vakandi!
Ekki gott!!
Langar svooo að komast í draumaheim en hausinn vill bara ekki stoppa...
Kannski ég fái mér hrökkkex með osti? Vona að osturinn sé í lagi!
Er ekkert búin að borða í 14 tíma, en aftur á móti búin að drekka rosalega mikið kaffi, bara einsog mófó.....þar kemur stóra ástæðan fyrir svefnleysinu!
Má nebbla ekki stunda kaffidrykkju frameftir kveldi en gleymi mér bara stundum...ummm það er svo obosslega gott!!! Myndi ekki hika við að fá mér kaffi núna með hrökkkexinu ef ég myndi þá ekki bara endanlega koma í veg fyrir að ég gæti sofnað :) svona fer fíknin með fólk!!
Í gær keypti ég dvd-diskinn með Nýdönsk, sem er upptaka af Ný dönsk & sinfó, skynjun. Nokkuð góður.
Kaufti líka rauðvínsflösku til að drekka að kvöldi 21 þessa mánaðar...þá eru þessi fokking próf búin...þoli ekki próf...miklu hrifnari að símati.
Vildi stundum að ég væri enn í framhaldsskóla og að vinna í jólapóstinum....eitthvað svo simpelt!
Æii sorry hvað ég er eitthvað neikvæð...bara svefnleysi og pirringur!
Vildi frekar vera með svefngalsa.
Annars er ég að spá í að leggjast uppí rúm og glugga í bók sem ég er nýbyrjuð á og heitir The rule of four...lofar góðu! Held að íslenska útgáfan sé Belladonna skalið...ummmm samt ekki viss??
Vona að ég detti útaf...væri ekta ég samt að lesa til hádegis þar sem ég elska svona spennu-ráðgátusögur....besta dæmið síðasta sumar þegar ég var með fjölskyldunni á Spáni og gat ekki farið útúr íbúðinni okkar fyrren Da Vinci Code var kláruð. Og NotaBene ég ELSKA að liggja í sólbaði...hihihih....
Góðan daginn þið morgunhanar sem eruð að komast á fætur hvað á hverju...
KaffiKroppurinn kveður..... kisskissknús&kram

5 Comments:
SUNNA DÍS!!! Þú ert í ruglinu! Hvað ertu að þamba þetta kaffi svona seint, þetta fer illa með þig :(
(Nú er ég endanlega farin að hljóma eins og mamma þín)
skvisa....
hvad er màlid sè aldrei nokkurn timann ad thu talir um mig...thvìlìk vonbrigdi, helt ad vid værum kærustur !! jæja ætli eg verdi ekki bara ad hætta thessu ef ad thu getur ekki verid i alvarlegu sambandi, annad hvort alvor eda nothing baby !!!!
Haltu afram ad drekka kaffi...go girl...!! Greinilega skroppid i ikea og keypt ther nyja kaffikønnu !!!
Koss og knus......
Hilsen fra oslo....leynilegur addàandi..
I don´t do relationsships, wich is why I have great sex!!
Haha..... á milli okkar...bara greit fokk!!
Annars sakna ég þín obosslega og skal reyna að minnast á þig í pistlunum hér eftir...hef bara aldrei fundið nógu góða ástæðu ;)
Er ekki enn búin að kaupa mér kaffikönnu í IKEA..langar frekar í kaffivél úr te&kaffi...er svona að spá!!
Munar dáldið miklu í verði...einsog 50 þúskalli!! Drakk allt þetta kaffi á Iðnó í gær fríkeypis í vinnunni. Alltaf að græða...
Ætla að hringja í þig um helgina :) þangað til...kisskissknús&kram
Bíddu bíddu bíddu...hver á líka kærasta ef ég man rétt og meira segja fiancé?? Haa??? Humm??? Já einmitt!!
Ekki að gera þetta með viljann að vopni...:) held að kaffið hafi verið áhrifavaldur svefnleysisins!!
Nobody wants insomnia!!
Skrifa ummæli
<< Home