Gleðilegt nýtt ár!
Gleði og Glaumur síðustu helgar var all svaðalegur...
Ég og Guðrún, betur þekkt sem Senjoritan eða G&T drukkum, dönsuðum og sigruðum (kom sá og sigraði) hahaha....
Ótrúlega gaman að tjútta og tralla svona vel fyrstu stundir nýja ársins...
Vonandi það sem koma skal!!
Hef reyndar aldrei átt í vandræðum með að skemmta mér, hvort sem að það er á kostnað annarra eða ekki ;)
Nú langar mig bara til að leggjast í hýði og sofa af mér janúarmánuð.
Vakna svo rosa fersk í feb´
Æii hef alltaf verið eitthvað svo "lost" þennan fyrsta mánuð nýs árs...einhver kenning Freuds hlýtur að útskýra þetta meðvitaða ástand mitt.
Einhver duld eða hvað það kallast??
Annars held ég að þetta verði bara fínt ár....svona í alvöru talað....hef heyrt að þetta sé ár ástarinnar fyrir einhleypa hrútinn...úúúú bring it on!!
Alveg til í svona alvöru ást...alvöru skot...fiðrildi og alles ....
Dansa á vængjum ástarinnar og syngja La vie en rose með Edith Piaf út í eitt...
Hahaha...er akkúrat að hlusta á disk með frönskum og rómantískum lögum sem heitir Café de Flore, rendez-vous à Saint-Germain-Des-Prés....
Það skondna við það, er að núna er lag sem heitir Je cherce un homme, sem þýðir fyrir þá sem ekki eru læsir á franska tungu; mig langar í mann, eða ég er að leita að manni.
Hreint ótrúlegt fyndið...eða ekki. "Einkahúmor..."
Planið fyrir vikuna er að hlaða batteríin fyrir næsta fyllerí ..!
Verð bara að drekka mig í gegnum jan....hahaha nú fer fólk að hafa áhyggjur af Sunnu sinni :)
Ætla sko að hafa það æði gæði gott, gera allt sem ég ætlaði að gera á milli jóla og nýárs en gerði ekki sökum mikilla anna. T.d. horfa á dvd, lesa bækurnar á náttborðinu, pakka því litla jólaskrauti sem ég setti upp og taka til, losa mig við allt sem má bara fara og passar ekki nýju ári, sortera diska og plötur, fara í dekur og margt fleira minna spennandi.
Annars biður SunnaSætaSvakaSkvísa rosalega vel að heilsa ykkur, sérstaklega Ragnhildi Ósk a.k.a. Reggae Hammond í Osló sem hringir í mig og kætir mig...love u longtime....
Kiss kiss knús & kram....

4 Comments:
Við verðum að fara á Vegamót núna mjög bráðlega...ég er alveg sólgin í matinn þar!! Ertu ekki til í dinnerdate very soon?
Þá gætum við loksins sest niður..þar sem það varð ekki mikið um eldamennskuna hjá minni þessi jólin og rætt allt milli himins og jarðar..
What u say about that!
Kv. sirra
Alltaf til í mat og drykk á Vegó...namminamm.....
"Date-night every night" ;)
Hæ Sunna mín og gleðilegt nýtt ár og allt það......
Hurðu manstu eftir skrítna disknum sem við hlustuðum stundum á, hann var held ég fjólublár, voða skrítin og skemmtileg tónlist. Manstu nokkuð hvað hann heitir?
Ha??? Þarf að hugsa dálítið!!
Fjólublátt hulstur...eða var það fjólublár diskur??
Alveg úti að skíta núna...
Gæti komið þó...á eftir að renna í gegnum safnið mitt og tékka. Inflight er eiginlega það eina sem mér dettur í hug....safndiskar...ÆÐI!!
En annars gleðilegt ár og allt það sömuleiðis esskan....
Fékkstu ekki jólakortið frá mér sæta mín....:(
Vinur minn í NC er búin að fá sitt!!
Skrifa ummæli
<< Home