Kristin eða kaþólsk?
Í dag fórum við í messu í Kristskirkju. (Landakotskirkju)
Þ.e.a.s. ég og Palle Pedersen :)
Ástæðan var nú aðallega til að sitja í fallegri kirkju og prufa eitthvað annað. (mætti halda að ég væri kirkjumella)
Upplifa andann kannski?? Heilagan anda!
Þetta var öðruvísi...leið svona pínu einsog illa gerðum hlut þarna...kann auddað ekkert á svona kaþólskar messur!! Eða bara messur yfirhöfuð....
Þó ekki í fyrsta skipti sem ég sit hana.
Fór ´98 með sundþjálfaranum mínum í páskamessu í Siegen, hans heimabæ í Þýskalandi.
Þá var hámessa og miklu meira tilstand, fékk handmálað egg og voða gaman.
En í dag var bara þessi venjulega messa sem er daglega.
Presturinn er predikaði var gormæltur og smámæltur útlendingur :) aha...gat semsagt ekki hugsað um annað!! Hihihi....
Náði ekki að biðja heila bæn.... maríubæn hvað þá heldur...hehe
Skildi illa það sem hann sagði....þó orð einsog Drottinn..kristur..Jesú..Guð...Föður....sem hann bar ótrúlega fram...
Kallinn örugglega frá þýskumælandi landi...hlýtur bara að vera.
Heitir örugglega Gregorius....muhahaha
Þarna sat ég semsagt í miðjum messugjörðum og hugsaði mest um hve presturinn líktist mikið froski og hvað mig langaði að borða í kvöldmat.
Mér er ekkert heilagt!!

8 Comments:
Ég er hissa að þú hafir ekki skellt uppúr Sunna mín, ég er stollt af þér.
Held nefnilega að einhver ókunn öfl hafi verið þar að verki og hjálpað mér að bæla niður hláturgusurnar :)
Því það er mér óskiljanlegt hví ég hló ekki hátt og dátt einsog mér er einni lagið!!
Já þetta er lífsreynsla að fara svona. Ég er bæði búin að fara í kaþólkst brúðkaup sem tók sko rúma tvo tíma, tvo og hálfan tíma, sem að mér finnst alltof langur tími. En svo prófaði ég að fara í Krossinn einu sinni og kaþólsk messa er nú ekkert á við það! Það get ég sagt þér, þú verður að prufa það og setja svo pistil hér inn :-)
Kv. Sigurbjörg
Já er alltaf á leiðinni í Krossinn...er bara hrædd um að ég mundi drepa Gunnar af heift í miðri predikun ....
En kaþólsk messa er voða næs...þ.e.a.s. bara stutt og laggott :)
Já það hefði ekki verið erfitt að ráðast á Gunnar eftir þessa messu eða hvað ég á nú að kalla þetta! Ég fór sko með skólanum og við fengum að tala við hann á eftir og veistu hvað hann sagði? Að skírn væri one way ticket to hell!!!!! Já þetta sagði hann við okkur og við urðum öll brjáluð!
Kv. Sigurbjörg
Hehe já hann er ótrúlegur maður! Alls ekki alslæmur.
En ég hef komist að þeirri "niðurstöðu" eftir miklar vangaveltur um mína eigin "trú" að það er ekki hægt að rökræða um trú og trúarbrögð. Þetta er svo persónulegt!! Svona hvers og eins, og það sem einn skilur eða finnst vera svona og svona finnst hinum alls ekki...
En þegar allt kemur til alls vona ég að fólk flest láti kærleikann og vonina vega þyngst...því þessi heimur sem við búum í þarf á því að halda.....bleeeeble...voða væmin
Og takk fyrir jólakortið...voða sæt mynd :)
Þið fáið víst ekki jólakort frá mér þessi jólin frekar en aðrir....
Verði þér að góðu með jólakortið :-) Tók smá tíma að fá þessa mynd :-) En ég er sammála með trúarbrögðin, þetta er mál hvers og eins. Ég segi alltaf eins og í Imagine með John Lennon, ýmindaðu þér ef það væru engin trúarbrögð og allir væru eins á litinn!
Þá er ég nú viss um að heimurinn væri öðruvísi!!!
Kv. SJ
Skrifa ummæli
<< Home