.comment-link {margin-left:.6em;}

Sunna Sweet

29.12.04

Áramót-Vegamót

Sit hérna, loksins heima hjá mér, eftir langan vinnudag á Iðnó, sötrandi rauðvín með handklæði á hausnum....Sexí?
Hlusta á Lou Reed. Kúl?
Hafði það obosslega gott yfir jólahátíðina...umvafin ást og hlýju nánustu ættingja :) Væmin?
Mikið borðað af allskyns mat!! Matargat!
Fékk fullt af flottum og fallegum gjöfum ....
Takk fyrir mig! Þakklát!
Woww veðrið er að klikkast...Hrædd! Alein! Spurning um val ;)
Annars er ekki mikið að frétta...bara búin að vera hér og þar...næstum alls staðar...en samt ekkert agalega merkilegt í gangi!!
Áramótin eru næsti merki áfangi tímabilsins.....Tilhlökkun!!
Stefnt er á að dansa gleði og sorgir ársins frá sér. Take a walk on the wild side!!
Gullfoss&Geysir munu þeyta skífum af sinni allkunnu snilld á Vegamótum....við hæfi að skemmta sér á áramótunum á Vegamótunum :)
Er í eiginlegu milli-bils-ástandi þessa dagana....krossgötum....get ekki útskýrt nánar þó, án þess að nota hendur og svipbrigði ;) ...heheehe....því miður! Tant pis...
Jæja er að spá í að fara að skríða undir sæng, glugga í bókina Arabíukonur eftir Jóhönnu Kistjóns...svífa svo á vit ævintýranna......
Vill endilega birta texta sálmsins Í dag er glatt í döprum hjörtum sem er einn af mínum uppáhalds...sérstaklega á þessum tíma árs.

Í dag er glatt í döprum hjörtum,
því Drottins ljóma jól.
Í niðamyrkum nætur svörtum
upp náðar rennur sól.
Er vetrar geisar stormur stríður,
þá stendur hjá oss friðarengill blíður,
og þegar ljósið dagsins dvín,
oss Drottins birta kringum skín.
Oss Drottins birta kringum skín.

Guðs lýður, vertu´ ei lengur hræddur
og lát af harmi´ og sorg.
Í dag er Kristur Drottinn fæddur
í Davíðs helgu borg.
Hann fjötrum reifa fast er vafinn,
í frelsi barna Guðs svo þú ert hafinn.
Hann þína töfra tók á sig,
að tign Guðs dýrðar skírði þig.
Að tign Guðs dýrðar skýrði þig.

Sálmur 78. Eftir W.A. Mozart og Valdimar Briem

Lifið heil síðustu daga ársins....

6 Comments:

At 10:42 f.h., desember 29, 2004, Blogger Ásdís said...

Voðalega ertu orðin dramatísk á þessum síðustu og verstu tímum elskan mín! Mig langar bara að hoppa í gegnum skjáinn og knúsa þig...

 
At 3:15 e.h., desember 29, 2004, Blogger sunnasweet said...

Elsku besta Ásdís...farðu varlega í henni Ameríku.
Bið að heilsa sætu strákunum í Williamsburg, ja eða Brooklyn ;)

Já Palli, þessi sálmur er baaara guðdómlegur!
Þó skil ég ekki alveg afhverju ég verð svona rosalega glöð og meyr við að hlusta á hann....snertir greinilega einhverja dulda strengi :)

 
At 5:29 e.h., desember 30, 2004, Blogger sunnasweet said...

ÆÆÆi músa mín...skil að þú saknir mín :)
Haha...
Eru ekki líkur á því að við hittumst eitthvað á fyrstu tímum næsta árs??
Verst að það er búið að loka kaffi List ;) hihihi...hefðum getað mælt okkur mót þar!

 
At 3:35 e.h., janúar 01, 2005, Blogger sunnasweet said...

Hvað segiru með Bar Bianco....hehe...
Vera ógisslega ódannaðar og hneyksla pakkið með drykkju og látum...hihihihhahahahuhuh....

 
At 11:32 e.h., janúar 03, 2005, Anonymous Nafnlaus said...

Jæja Sunna, ég vil fara að heyra um gleði áramótannna hjá þér! Var ekki stuð hjá þér eins og vanalega?
En alla vega þú verður nú að lesa pistilinn minn á minni síðu og commenta á hann, ég eiginlega sagði í pistlinum að þú mundir örugglega gera það svo það er eins gott að þú gerðir það :-) hihi

KV. Sigurbjörg

 
At 2:38 f.h., janúar 04, 2005, Blogger sunnasweet said...

Ég þarf að hafa skoðun á öllu :)

 

Skrifa ummæli

<< Home