.comment-link {margin-left:.6em;}

Sunna Sweet

25.1.05

Vinna gerir væran svefn...

Já það má sko með sanni segja að síðasta helgi hafi verið tíðindalítil...svona í samanburði við meðalhelgi hjá SunnuSweet ;)
Fyrsta vinnuhelgin í Hollgæslunni..og tókst stúlkunni að vinna hvorki meira né minna en heila 44 tíma.
Ágætis frammistaða það!!
Annars felst í starfi mínu fyrir Hollgæsluna að sjá til þess að landinn gleymi sér ekki í sukki og svínerí...djammi og djúserí....
Semsagt að tjútta og tralla (skýrslugerð um ferðir og fundi)!!
Ég þótti afskaplega frambærileg í starfið þar sem ég stunda næturlífið grimmt og er frekar mannblendin, og næ þannig til mikils fjölda fólks. NB þetta er svona "undercover"....
Ferlega spennandi að prufa eitthvað svona nýtt.
Má eiginlega ekki kjafta frá meiru varðandi þetta jobb... gæti lent í svo miklu veseni :$
Annars er ekkert að frétta svosem...er að hlusta á dvd-diskinn Devotional með Depeche mode sem ég keypti í Skífunni um daginn...sjúklega góður.
Í gær bauð ég Senjorítunni í Kúrbítslasagna..það var obosslega gott að vanda.
Við kúrðum og létum okkur hlakka til helgarinnar góðu.
Planið er í stórum dráttum nokkurn veginn svona,
Fös: Partí smartí fyrir fallega fólkið
Lau: Borða og drekka á Austur Indíafjelaginu....sjá Þetta er allt að koma í Þjóðleikhúsinu og fá sér kannski drykk í hléi :) og klassa kokteil bar-rölt frameftir nóttu.
En hei verð að fara fá mér fyrsta kaffibollann minn...ummm það er svona eitt af fáu sem kemst nálægt því að vera fullnæging, þó ekki sé hægt að líkja því saman að fullu ;)
Hafið það gott í dag elskurnar mínar....



4 Comments:

At 9:49 f.h., janúar 25, 2005, Blogger Ásdís said...

Er ég falleg?

 
At 10:34 f.h., janúar 25, 2005, Blogger sunnasweet said...

Haha...já svo sannarlega, eiginlega alltof falleg fyrir þetta geim!!

 
At 5:57 e.h., janúar 25, 2005, Blogger Lára Hrund said...

Tegar eg kem heim eftir fimm manudi eda svo verdum vid sko ad halda beautiful people party..... og malum baeinn fjolublaan.

 
At 1:02 f.h., janúar 26, 2005, Blogger sunnasweet said...

Hahaha...þið eruð allar fallegar!!
Ekki láta neinn telja ykkur trú um eitthvað annað!
Ég laða að mér fallegasta fólkið :)
Staðreynd sem að verður ekki hnekkt....
Guddy...fallegasta fólkið fer út á laugardögum ;)...vildi bara ekki særa föstudagskrúið hehe...
LáraKlára, málum í fjólubláu, bleiku og silfruðu!!
Love y´all ....sunnybunny

 

Skrifa ummæli

<< Home