.comment-link {margin-left:.6em;}

Sunna Sweet

18.1.05

Draumfarir...

Síðastliðna nótt dreymdi mig stórskrýtin draum...
Here it goes....
Ég og Guðrún ætluðum í Pilates í Bláalóninu sem var öðruvísi en það er í dag.
Ég var mætt á einhverjum station bíl með Egil Darra litla bróður með mér...þurfti samt nauðsynlega að koma bílnum á Selfoss og lét því brósa keyra þangað...(b.t.w. hann er 4 ára)
Varð síðan geðveikislega áhyggjufull afþví að ég vissi innst inni að hann kynni ekkert á bíl og að þetta væri ólöglegt...samt virkaði hann eldri en 4 ára.
Fraus gersamlega af áhyggjum. Gat ekki hreyft mig.
Tárin streymdu og mér leið ógó illa. Var að bíða eftir Guðrúnu og Obbu (mömmu hennar)
Loks komu þær...spurðu mig afhverju ég væri ekki búin að hringja í brósa...ég bara ha??? Er hann með gemsa...og þær bara já já!!
Hringdi í hann og þá svaraði hann og virkaði miklu eldri...sagðist staddur einhver staðar úti í hrauni, sprungið hafði á bílnum og að hann væri villtur en heill á húfi.
Ég var ekki alveg að trúa þessu, en Guðrún og Obba sögðu mér að koma í Pilates og við myndum líka fara í einn jógatíma í framhaldi og borða svo samlokur í nesti. (Halló!!)
Svo komum við inn í ljósbláan sal og þar voru bara karlmenn.
Við erum einu kvenkynsverurnar þarna inni.
Ég sest á eina dýnuna og líður hrikalega illa...þá er Harvey Keitel við hliðina á mér, alveg kattliðugur....hann sér hve illa mér líður og segir ,,hei beib, be pussy, act bossy" og ég vakna :)
Hahahahaha.........
Hef dreymt fullt af furðulegum draumum í gegnum árin og þessi mun ábyggilega komast í þann flokk, þar sem hann var ótrúlega skýr og tilfinningarnar sterkar.
Ákvað að skrifa hann á bloggið ....ykkur til yndislesturs...
Aðrir hafa verið of martraðarkenndir eða grófir fyrir svona létt og skemmtilegt blogg :)
Bonne nuit et fait des beaux rêves....

8 Comments:

At 9:37 f.h., janúar 18, 2005, Blogger Ásdís said...

Þetta er snilldardraumgreining Guðrún!!! Bwahahahha...

 
At 3:50 e.h., janúar 18, 2005, Blogger sunnasweet said...

Guðrún, þú ert nýja draumaráðningarbókin mín ;)

 
At 12:58 f.h., janúar 19, 2005, Anonymous Nafnlaus said...

hahahahaha þú drepur mig einn daginn Sunna!!! áttu djúpur?
- Birna

 
At 7:10 e.h., janúar 19, 2005, Blogger sunnasweet said...

Hehe..ég á aldrei til djúp esskan...alltaf löngu búin með hann!!!

 
At 1:52 e.h., janúar 20, 2005, Blogger sunnasweet said...

Þessi athugasemd hefur verið fjarlægð af stjórnanda bloggs.

 
At 4:41 e.h., janúar 20, 2005, Anonymous Nafnlaus said...

Það er ekki hægt að segja djúpur í eintölu!!!!! held ég hafi rætt þetta fram og tilbaka við Kristínu Maríu í sumar, það gengur bara einfaldlega ekki upp að kalla þetta djúp!!!!!!!! ;)
- Birna.

 
At 8:16 e.h., janúar 20, 2005, Blogger sunnasweet said...

Skv. Sunna´s Sweet dictionary er hægt að segja djúp...Punktur basta

 
At 1:26 e.h., janúar 23, 2005, Blogger sunnasweet said...

ÆÆi litla skinnið mitt!
Skárra er samt að vera almennilega veik en svona ekki veik en slöpp einsog ég er búin að vera undanfarið...
Sé fram á að þessi síðasta vakt mín þessa helgina verði um 20 tímar...það er bara stemming!
Það jákvæða er að þú verður vonandi búin að ná þér þegar þú ferð út og stendur þig einsog hetja í þjálfuninni að sjálfsögðu!! Love you longtime....

 

Skrifa ummæli

<< Home