Góukoma
Í dag er fyrsti í Góu.
Þessi dagur hefur lengi verið kallaður konudagurinn á Íslandi.
Elstu heimildir um daginn ná allt til miðrar nítjándu aldar.
Þann dag áttu karlar að vera umfram venju liðlegir og kurteisir við konur-
og jafnvel færa þeim eitthvert kvenskart eða fallegt glingur sem ástar- eða vináttuvott. (vááá)
Upp úr 1960 hófst síðan sá fallegi siður að gefa konum blóm á konudaginn.(rauðir túlípanar)
Oft er sagt að þegar að hinn forni góumánuður gangi í garð ljúki skammdeginu þann veturinn....efast einhvern veginn um að vorfílingurinn síðustu daga sé komin til að vera?
En meðan ég man þá hlýtur að vera góð ástæða fyrir því að dagurinn sem kenndur er sérstaklega við konur komi upp á degi sem kenndur er við mig, Sunnudegi??
Ég er svo mikil kona held ég barasta sé ástæðan (held reyndar stundum að ég sé karlmaður í kvenmanslíkama) ;)
Afhverju hef ég þá, meyjan sjálf, ekki fengið skart né blómvönd í dag?

5 Comments:
Elsku bestasta systir í heimi færð Milljón túlípana frá mér í tilefni dagsins ;) Kveðja Þinn ástkæri bróðir
Það jafnast ekkert á við systkinaástina.....
Þú ert besti bróðir í heimi!
Ohhh hvað þú átt sætan bróður ;)
En annars finnst mér nú að það eigi að breyta þessu aftur yfir í skartið, það er miklu betra heldur en blóm... Blómin deyja en skartið lifir að eilífu...
Ó jess gæti ekki verið meira sammála!! Diamonds are forever :)
Hvernig var það nú í Moulin Rouge...."Diamonds are a girls best friend" ;)
Skrifa ummæli
<< Home