.comment-link {margin-left:.6em;}

Sunna Sweet

29.3.05

Páskar = kjötveisla og rauðvínssull

Úfff... er enn að jafna mig eftir páskahelgina miklu.
Fór ekki vestur en gerði mér glaða daga hér í höfuðborginni minni.
Þar má nefna grillveislu heima hjá DaddíKúl....nammm...fæ vatn í munninn bara af því að hugsa um það...
Pabbi er einn besti og mesti kokkur sem ég þekki.
Drykkja í góðra vina hópi og skrall & trall fram eftir morgni.
Gerði ýmislegt mis-skynsamlegt af mér :$...ææi er ekki bara gaman að því.
Nenni ekki að vera fullkomin, alltaf!
Árshátíðin hjá staffinu á Iðnó var á laugardagskvöldið og var eitt allsherjar leikrit, þar sem að allir voru leikendur í brúðkaupi og léku sín hlutverk hvort sem þeir voru skyldmenni brúðhjóna, vinir eða performistar. Svona allt í plati...
Sniðugt!
Þar var AndrésÖnd í aðalrétt sem er náttúrulega eitt það besta sem ég fæ í munninn...slurp slurp...
Eftir óperusöng og daður við sætustu brúðkaupsgestina hitti ég hina einu sönnu Guddy from the block og Pjelle Pedersen og dansaði á Kaffibarnum einsog mér einni er lagið...
Drakk líka rauðvín og bjór einsog mér einni er lagið :)
Var mjög alþjóðleg ;) hehe...
Á Prikinu var mar orðin ansi lúin og til í að fara heim...endaði í pastapartý hjá ástinni, fór í sturtu(ekki saman samt) og krassaði uppí hjá henni....
Sunnudagur var bara "recovery" og fjörugt fjölskyldumatarboð.
Svo er það bara vinna og flutningar þessa dagana....ætla að flytja mig ofar metorðastigann í lífinu : )

9 Comments:

At 1:41 f.h., mars 31, 2005, Anonymous Nafnlaus said...

Vertu velkomin í penthouse-ið elskan;)...það er æði að vera á toppnum "á tilverunni;)"...enginn að bögga mann fyrir ofan:c)

 
At 2:12 f.h., mars 31, 2005, Anonymous Nafnlaus said...

takk fyrir skemmtilegt rauðvínssull...það var alveg sæmilega mikið gaman þetta kvöld sem endaði alveg súper vel ;)

 
At 4:33 e.h., mars 31, 2005, Blogger sunnasweet said...

Já kúl, var eiginlega ekki búin að gera mér grein fyrir að ég er að flytja í penthouse.....wowww made my day ;)
Já Sigga þetta djamm okkar var bara fönní....to be continued for sure...

 
At 1:59 f.h., apríl 01, 2005, Anonymous Nafnlaus said...

Flott hjá þér að vanda Sunna mæn :) sé þig á morgunn með troðið veski, Kveðja The One And Only Einsi Bró :) Bleee marr

 
At 10:44 e.h., apríl 02, 2005, Anonymous Nafnlaus said...

ekki gott ad vera alltaf fullkomin....humm, tharf sko ad fara ad hringja i tig elskan min:)
sakna tin...

pjøllukvedja fra oslo

 
At 5:43 e.h., apríl 03, 2005, Anonymous Nafnlaus said...

já mín bara flutt, til hamingju með það ;) svo á S.Sweet bara ammæli bráðum (við báðar sko;)) veður þá ammæli og innflutningsparty sama kvöld eða verður tekin heil helgi í þetta? Mér líst eiginlega betur á heila helgi, hvað segiru um það S.Sweet??

 
At 9:00 e.h., apríl 03, 2005, Blogger sunnasweet said...

Já Einsi bró veskið mitt er alltaf svo troðið..NOT!
Já Ragnhildur...mátt alveg fara að hringja í mig ...hehe..
Er reyndar flutt og komin með nýtt númer...590-4607...ég bjalla á þig í vikunni.
Já Sigga...við erum afmælisbörn mánaðarins....flottastar af öllum!!
Sé til með innflutnings- og afmælisteiti??

 
At 6:45 e.h., apríl 04, 2005, Anonymous Nafnlaus said...

Hæ skvís! Afhverju komstu ekki bara með mér vestur!??! Ég kíkti á aldrei fór ég suður og þetta var miklu flottara en í fyrra!!! Þú KEMUR með næst! Hvernig væri svo að pæla í hittingi?

 
At 8:29 e.h., apríl 04, 2005, Blogger sunnasweet said...

OOO talandi um að nudda salti í sárin...kem pottþétt næst...byrjum að plana það a.s.a.p. :)
Það væri líka margt vitlausara en að hittast....

 

Skrifa ummæli

<< Home