Sweat Sweat Sweat
Þessi helgi var jafn viðburðarrík og margar aðrar hjá SunnuSweet...en eitthvað óvenju sólrík og falleg.
Á föstudaginn var veðrið yndislegt og ég og Búbbulína gerðum okkur glaðan dag/kvöld/nótt í bænum (101).
Fórum kaffihúsanna á milli, sötruðum bjór og horfðum á mannlífið í mestu makindum.
Smá útlandafílingur í þessu öllu saman.
Fann meira segja svona útlenska lykt....ímyndið ykkur...
Borðuðum gómsæta fiskirétti á TapasBar sem við skoluðum að sjálfsögðu niður með hvítvíni. SiggiSæti kom og stal nýju D&G sólgleraugunum hennar Búbbu....aaaaa...hahaha...en ekki mínum ómerkilegu úr Spútnik..;)
Röltum svo þrjú á Ölstofuna þar sem hvítt, rautt og gult var þambað alltíbland.
Ussuss....
Þar var spjallað við kvikmyndaframleiðendur og rithöfunda....sem og gamla en alls ekki gleymda vini úr sundinu...
Um eittleytið beilaði ég á næturlífinu, enda búin að vera miklu lengur en plön stóðu til.
Svaf út á laugardaginn og skellti mér svo með móðursystrum mínum í smá endurfæðingu í Elliðaárdalinn.
Nánar tiltekið í SWEAT hjá Nonna og Heiðari sem var náttl bara æðislegt.
Þeir eru svo miklar elskur....oooo
Eftir næstum 7 tíma prógramm var ég svo fallega þreytt, dösuð og skynsöm að ég fór beint í rúmið og svaf einsog bebe...
Á Sunnudaginn vaknaði ég með bólur og þvílíkar stírur í augunum....greinilegt að einhver hreinsun hafi átt sér staði í sweat-inu svakalega.
Ætla aftur bráðlega og ykkur er velkomið að koma líka...sooo gaman að fara saman!!
Eftir að hafa náð stírunum úr augunum og reynt að fela bólurnar fórum við frænkurnar á Vegamót bar&bistro...lauksúpa með glóðuð brauði og rauðvín...say no more...!
Skelltum okkur svo á Hotel Rwanda í Regnboganum....vááá hún var rosalega átakanleg og sorgleg...var með ekkasog á leiðinni út :(
Fær fimm *****
Núna er mánudagur og ég er að hlusta á SmashingPumkins.
Líður einsog ég hafi verið erlendis um helgina....sé komin heim og jább bara próf í fyrramálið
: ( sjæse!!
Back to life, back to reality...dadarada..muniði eftir þessu lagi.
Þarf að finna það :)
Rétt í þessu var ég að fá heimsendan afmælispakka frá Germaníu...jeiii!
Voðalega flott Ritzenhoff vínglas. In Vino Sanitas (in wine there is health) hahaha....
Neyðist til að fá mér í glas ;) Vielen dank PalliPungur
Annars bið ég að heilsa ykkur....
P.S. Þið getið látið ykkur hlakka til, því seinna í vikunni ætla ég að uppfæra sætu-stráka-listann minn alræmda...úaúaúadadadajejeóbeibí

5 Comments:
úúú mér hefur alltaf langað að prufa að fara í sweat...pannt koma með næst ;)...gangi þér vel í prófinu á morgun esskan...og ég hlakka sko til að fá update á sætu-stráka listanum þínum =)
kiss kiss
Get ekki bedid...SÆTU STRAKA LISTINN.....ùù...lala...!!!
Oslogella
Já, ég er líka memm í svettið! Þetta verður dúndurgelluhópferð ;)
Jamms væri gaman að safna liði og vera bara fullt af stelpum...
Allt að koma....
Skrifa ummæli
<< Home