Get fresh at the weekend...
Kæru Eurovision-aðdáendur (Ásdís & Berglind) votta ykkur innilega samúð mína..muhahaha....
Næsti vínyll vikunnar verður tileinkaður ykkur ;)
Annars er allt gott að frétta...nóg að gera og sonna....bissí sósíal skeddjúl!
Gaman í vinnunni sem gerir lífið náttl svo miklu skemmtilegra...tala nú ekki um þegar að Guddy from the block mun mæta á svæðið í næstu viku...jabbadabbadúú! Túú möts hottness
Það er líka akkúrat mánuður í dag þangað til ég legg í smá ferðlag til Freiburgar í Þýskalandi, þar sem ég ætla að hitta PallaPrins og gera e-ð æðislega skemmtilegt.
En já back to business; hef náð að hlusta þó nokkrum sinnum á NOW 8 safnplötuna mína og er tilbúin að pakka henni og byrja á nýrri.
Sum lögin fæ ég aldrei leið á...einsog t.d. In the army now með Status Quo, Human með Human League, I just died in your arms með Cutting Crew, Don´t give up með Peter Gabriel og Kate Bush, Walk this way með RUN D.M.C., Suburbia með Pet Shop Boys, Breakout með Swing Out Sister, Higher Love með Steve Winwood, In too deep með Genesis og I wanna wake up with you með Boris Gardiner.
Man alveg eftir þessum lögum í spilun þrátt fyrir verulega ungann aldur.
Lag plötunnar er Notorious með Duran Duran, band sem að ég ætla sko að sjá live 30. júní.
Ekki eitt af þeirra bestu, bestu lögum en samt skemmtilegt.
Fullt er af öðrum steiktum lögum sem ná mér ekki alveg á sitt band.
Titlar einsog Showing out (Get fresh at the weekend), I didn´t mean to turn you on og French kissing in the U.S.A. virka bara ekki.
Lögin þurfa að vera helvíti góð til að bera svona nafn :)
Annað er bara tótal törnoff!!!
Mig minnir að ég hafi keypt þessa plötu í Góða hirðinum á fjögur hundruð kall sem er örugglega svipað og hún var seld á út í búð ´86...meira að dálítið dýrari.
En sé ekki eftir einni krónu...hef gert verri og dýrari kaup um ævina, hah!
Gefin út af EMI og Virgin Records árið 1986.
En að lokum þá fær platan í heild sinni þrjár stjörnur...af fimm mögulegum.
Það er sanngjarnt.
Næsta plata er tileinkuð júróvísjón-æðinu þessa dagana og keppninni í kvöld sem ég mun að sjálfsögðu EKKI fylgjast með. Held samt með norsurum.
Finnst þetta orðið mjög þreytt og leiðinleg keppni.
Eða bara tónlistin er ekki mín skulum við segja.
Þetta er aðhlátursefni í mínum huga.
En platan er með framlögum 20 landa í Eurovision 1986.
Kallast international GrandPrix ´86 (Alle 20 originalmelodiene fra den internationale finalen)
Ætli ég hlusti nokkuð nema einu sinni á hana...grunar það svona þegar að ég renni yfir lagalistann...en þó kannski á örfá lög oftar en einu sinni...einsog t.d. J´aime la vie með Söndru Kim og hin íslenska Gleðibanka....vildi að ég væri viðskiptavinur hjá þannig banka...þar sem mar leggur ekkert inn, tekur bara út :)
En já ég held ég fari að segja þetta gott í bili...óska ykkur góðrar helgar
P.S. Golden Girls, var að spá í að halda sumarpartí 10. júní. Eftir 3 vikur....
Endilega látiði mig vita hvernig það hentar ykkur og takið daginn frá ef þið eruð lausar....
Túrílúú...

6 Comments:
Já 10. júní hentar mér bara mjög vel! Hlakka mikið til.
Sigurbjörg Golden Girl
Þetta var nú ein sterkasta júrókeppni í marga áratugi svo að ég held að niðurstöðurnar séu nokkuð ásættanlegar ;)
Ásdís
Þú ert svo skondin Ásdís mín...in a good way...
Kæru vinir og vandamenn....Sunna dis er fràtekin og upptekin dagana 11-19.jùni !!! :=) :=)....
kyss...Osloskvisa
hentar mér mjög vel :)hlakka mikið til...
Berglind GG
Haha.. þú ert líka skondin Ragnhildur mín! Hlakka til að sjá þig...aðeins rúmlega tvær vikur í geimið. Vúhú...
OK merki ég við Beggs n´Sibbs á listann...vonandi komast fleiri því þetta er eini lausi dagurinn hjá mér fram í ágúst held ég bara...
Skrifa ummæli
<< Home