Já í dag er ÆÐISLEGUR dagur!
Afhverju...æii bara þið vitið, einn af þessum dögum sem mar er eitthvað svo sætur í speglinum, ofur hress og jákvæður, finnst allt meika sens og lífið yndislegt :) hihi
Greinilegt að SunnaSweet er í ruglinu ;)
Annars er ég að vinna og "svaka" stemming í því.
Er að hlusta á XFM 91,9..Mr. Dolly með Brainpolice bergmálar hérna á skrifstofunni "minni" :) er að vona að Honest mistake með Bravery komi áður en ég yfirgef þessa skrifstofu.
Já þið munuð því miður ekki sjá Sunshine lollípop á börum borgarinnar í kvella...oo nei oo nei..stefni á lestur með lille bro og hvíld. (með sérstaka áherslu á HV fyrir PallaPrins)
Mikil vinna og lítill svefn síðustu vikuna orsakar algerlega freðinn haus!!
Annars er það að frétta af júróvísjón plötunni sem var vínyll vikunnar, að ég hef ekki gefið mér tíma til að hlusta á hana...enda held ég að ég muni bara ekkert geta það, aldrei í rauninni ef því er að skipta.
Örugglega hreinasta helvíti að hlusta á hana!
Hlustaði reyndar á nokkra fræga slagara en rest heillar mig ekki.
Þannig að því miður verður engin umsögnin þessa vikuna :(
Mun samt alls ekki leggja það í vana minn að beila á þessu sko. No No No....
Þetta er bara smá undantekning frá meginreglunni. Ég er mannleg ;)
Hef frétt af nokkrum nýjum lesendum bloggsíðunnar og býð ég þá bara hjartanlega velkomna í hópinn...vill samt vara þá við siðlausum sukksögum og kynvilltum hugarheimi stúlkunnar.
Allt á ykkar eigin ábyrgð elskurnar!!
Hef ekki sagt neitt af viti í dag og mun líklegast ekki gera það héðan af...andinn svífur yfir annars staðar en í Leifstöð Leifs Eiríkssonar svona í morgunsárið..
Kiss kiss knús og kram .... elska flest ykkar!

4 Comments:
Veit ad thu elskar mig alveg otrulega mikid......
knùs,oslò Pjalla
Jáhá ...elska þig alla leiðina til tunglsins...kringum allar stjörnurnar og tilbaka :)
jibby...jibby....gaman saman !!! Mundu, thù ert pjøllustelpan min....
Kvedja, Oslopjalla
haha pjöllustelpan þín...gæti misskilist :) but who cares..
Love you pussycat
Skrifa ummæli
<< Home