Voksne Mennesker
Já það fór svo að ég kíkti í kvikmyndahús í gærkveldi...óalgengt? :)
Ég og DísTheSkvís sáum Voksne mennesker eftir Dag Kára, sem er hin fínasta mynd...þrátt fyrir að dala síðastu 20 mínúturnar...eitthvað svona "David Lynch copycat" ææi veit það ekki, eru ekki hvort sem er allir að copy þetta og copy hitt....ekki hjá því komist!
Elska náttl David Lynch!
Horfði á Twin Peaks þrátt fyrir að mega það alls ekki og vera að skíta í buxurnar af hræðslu.
Á svo alltaf eftir að sjá Nóa AlbíNóa...ekkert smá eftirá eitthvað.
Verð að fara á vídjó og leigja hana við fyrsta tækifæri.
Hef svosem ekkert brjálað kvikmyndagagnrýnisvit...en manni finnst bara það sem að manni finnst og voksne mennesker er fín mynd þrátt fyrir lægðina í endann.
Ekki er líka verra að styrkja íslenska kvikmyndaframleiðslu í leiðinni.
Næst ætla ég annað hvort að sjá Maria full of grace eða Sin city.
Helst báðar.
Vínyll vikunnar er með Queen og heitir The Works....ástæðan er sú að undanfarið hef ég heyrt útgáfu af laginu Radio GaGa með Electric Six og fékk gríðarlega löngun í að hlusta á gamla Queen hittara.
Það eru nokkur útvarpslög í spilun sem eru mín uppáhalds núna, þau eru LSF með Kasabian, Oh lala með Black eyed Pies, Be yourself með Audioslave, Fall to pieces með Velvet Revolver (hver sem er má alveg bjóða mér á tónleikana 7. júlí) Little sister með QOTSA, Blue Orchid með White Stripes, Speed of sound með Coldplay, Honest Mistake með með Bravery og eitt annað með þeim sem ég veit ekki hvað heitir, Murmur með Mugison, Nýjar útgáfur af Army of me með Björk, Nasty Boy með Trabant, Evil með Interpol, Girl með Beck og fullt fullt sem ég nenni ekki að telja upp eða hreinlega man ekki eftir.....
Jæja ætla að segja þetta gott í dag...muniði að enginn getur allt en allir geta eitthvað (Oprah Winfrey) ;)

5 Comments:
Spennandi... En spennandi...
Daman
Muhahahaha....
Ég á líka eftir að sjá Nóa Albínóa, þú mátt alveg bíða eftir mér ef þú nennir... og svo mæli ég með Maria full of grace, við eigum hana á DVD hérna í úglandinu og hún er alveg mögnuð.
Ó kúl..verð að sjá þessa mynd!!
En já er það þá ekki bara kósí mynda- og vídjókveld hjá okkur í sumar...
Bíð ykkur skutlum
Jamms það er dagsatt!
Tilgerðarlegt er orðið yfir alltof margar íslenskar kvikmyndir...sástu Fálka eftir Friðrik Þór?
Shitt, sjaldan séð jafn mikið eftir þúsundkallinum í þá bíóferð...
Skrifa ummæli
<< Home