.comment-link {margin-left:.6em;}

Sunna Sweet

3.7.05

Síðustu tvær vikur.....

Hellúúú....
Já ég er komin heim úr sumarfríi.
Skrapp aðeins til meginlandsins, nánar tiltekið Freiborgar í Suður Þýskalandi að heimsækja PallaPrins.
Það var hin ágætasta skemmtun. Heitt og sveitt!!
Helst til of heitt fyrir SunnuSweet sem er nógu heit fyrir :)
Vildi sko ekki búa í loftslagi þar sem að ég væri sveitt eftir sturtuna eða bara sveitt án þess að gera rass í bala.
Ég vill frekar klæða á mig hita en að vera í þeirri aðstöðu að geta ekki klætt mig úr fleiri flíkum.
Annars var þetta voðalega "easy going" hjá okkur.
Mikið borðað af góðum mat, eitthvað drukkið af þýsku víni og öðru sterkara (sem leiddi af sér miður skemmtilega uppkomu sumra) sofið út og sonna. Ekkert stress, enda ekki möguleiki í svona veðurfari. Maður verður bara hundlatur.
Nennti ekki einu sinni almennilegu búðarrápi sem er náttl mjög úr karakter.
Skruppum dagstúr til Sviss...keyrðum um og áttum æðislegt síðdegi í Basel.
Einnig kíktum við til Strassburgar.
Þar í borg var brjáluð tónlistarhátíð...og alveg meiriháttar að rölta um rómantískan og gamlan miðbæinn og hlusta á allaveganna tónlist flutt af allaveganna tónlistamönnum.
Sá þar einnig Capoeira sýningu sem vakti upp margar og góðar minningar.
Palli er svo mikill hænuhaus (drukkum léttvín með matnum) að ég þurfti að keyra um kveldið heim til Freiborgar. Á þýskri hraðbraut í niðamyrkri (enginn hámarkshraði)... aha ég var auddað drulluhrædd!
Þarna keyra menn sko á hraaaaða....160 er ekki neitt...Bimmi, Bens, Ferrari og Porshe koma sko á svona um og yfir 200 km hraða þjótandi frammúr manni...já ég held að það hafi runnið af Palla mínum.....svei mér þá.
En þetta hófst og var mín farin að hlægja og tralla í enda ferðarinnar :)
Þetta var semsagt fínasti túr.. takk fyrir mig Palli minn *knús*

Í fyrrakvöld fór ég með Guddy from the block á Duran Duran.
Það var fokking gaman. Leaves hituðu upp og voru góðir. Lagið þeirra Spell er unaðslegt og í uppáhaldi hjá mér þessa dagana.
DuranDuran meðlimir eru sko greinilega ekki búnir að gleyma neinu.
Simon LeBon var að meika það. Ummm hann er bara sexí...
Þvílíka stuðið.
Hvert lagið öðru betra...
Wild boys, Girls on film, The reflex og Rio standa uppúr.
Fékk líka gæsahúð dauðans þegar Come undone, Save a prayer og Ordinary world hljómuðu.
Váááá...varð sko ekki fyrir vonbrigðum.

Núna er það bara vinna um helgina og því ekkert féttnæmt í gangi.
Blogga eftir helgi....kiss kiss knús & kram

3 Comments:

At 10:23 e.h., júlí 03, 2005, Blogger sunnasweet said...

Hjúkket!!
OOO öfunda þig að vera að fara til Köben...hef ekki heimsótt hana síðan sumarið 2000...

 
At 11:16 e.h., júlí 04, 2005, Anonymous Nafnlaus said...

hæ sæta mín,
vildum bara segja þúsund þakkir fyrir gjöfina!! Knúúús til þín.
Kv. Sirra og fam. :)
(gaman að geta sagt fam !!) híhíí

 
At 10:47 f.h., júlí 05, 2005, Anonymous Nafnlaus said...

Hvenær fæ ég að sjá þig á ný elskan?

Ásdís

 

Skrifa ummæli

<< Home