Gangstas n´ Thugs
Vínyllinn þessa vikuna er Let´s get blown.
Tónlistarmaðurinn er enginn annar en verðandi "Íslandsvinurinn" Cordazer Calvin Broadus a.k.a. Snoop Doggy Dogg (Snoopy Doopy Doo einsog ég kalla hann)
Þetta lag er æðislegt...eitt af betri lögunum á nýja disknum hans, R&G The Masterpiece sem að ég fjárfesti í fyrir nokkru.
Ákvað að eiga lagið góða á vínyl líka þegar ég sá plötuna í Þrumunni.
Kostaði alveg þúsund kall.
Glæný reyndar en dáldið dýrt fyrir singúl.
Æii what the fu##...kemur bara í staðinn fyrir djammið sem ég fór ekki á síðustu helgi :) heheh... Annars á SunnaSweet miða á tónleikana og fer að öllum líkindum, en þó aðallega til að hlusta á sín uppáhalds lög og dilla sér í takt.
Ekkert sérstaklega til að hylla þennan viðbjóðslega og ofbeldisfulla glæpon sem skrifar marga texta svo fulla af krappi og kvenfyrirlitningu að mér blöskrar.
Halló Snoopy minn...dáldið mikið útúrreyktur??
Ég kæri mig alls ekki um að vera nauðgað þó ég fái borgað fyrir það (örugglega fáar)....og vill alls ekki vera kölluð hóra. Kannski öðruvísi í USA?
Eníhús, mín heitasta ósk væri uppfyllt ef að Pharrell Williams (The Neptunes, NERD) væri í för með hundspottinu.
Hann á ekki kærustu ;)
Hann er svooo klár and he´s got the move.....újeee!
Hlustaði á Fly or die út í eitt síðasta sumar.... minnir mig núna aðeins of mikið á sumarprófið sem að ég tók í sifja-og erfðarétti í ágúst. Prump!
Held þó að líkurnar séu verí slimm á að hann komi....vona það samt :)
Í kvöld kom meirihluti GoldenGirls í saumó til mín.
Það var meiriháttar...mikið mönsað og kjaftað.
Læt þetta nægja í kvöld....word up!

9 Comments:
Mér finnst Mr. Snoopy vera hot þótt hann sé ógeð...
Hann má eiga það að hann er flottur kroppur... ;)
Mér finnst Egill Helga (Silfur Egils) alltaf jafn fyndinn...hann líkti Snoopy við hreysikött...muhahaha...dáldið til í þessu hjá honum :)
vááá alveg oní blómavasa uppá hillu hehehe...dúllísnúll!
Ég treysti þér fullkomlega!!
Manni er nú farið að hlakka dáldið til 16.ágúst...en fyrst er það Snoopy Doop á Sunnu-daginn (ætli þessi dagur sé tilviljun?)...sé ég þig ekki kannski þar??
Fo´shizzle my nizzle.....
Hæ Sunna og takk fyrir síðast, skemmtilegt kvöld. En viltu senda mér uppskriftirnar af salatinu og salsanu þínu, þetta var mjög gott.
En ég verð aðeins að taka þátt í þessari Snoopy umræðu, hvað eru börn ekki að horfa á í sjónvarpinu? Þar er verið að afhausa fólk en hann má ekki segja fucking hore???? Hvað er að? Bara þoli ekki svona, hvernig voru Bítlarnir?
Jæja nú er ég búin að pústa smá :)
Bæ
Sigurbjörg
Sammála ykkur stelpur...
Mér er alveg skítsama...get sjálf verið sóðakjaftur :)
Hvað með alla hinar þungarokk hljómsveitirnar sem hafa verið og eru að koma..?
Efast um að Alice Cooper verði stilltur.
Er þetta kannski rasismi??
Afþví að Snoopy er svartur..humm?? Heh!
Krakkar eru að hlusta/horfa á sorann allann liðlangan daginn heima hjá sér í tölvunum eða á popptíví.
Þetta snýst um uppeldi og ekkert annað.
Efast einhvern veginn um að íslenskt þjóðfélag muni bíða þess hnekki að fá hundinn heim...
En já Sigurbjörg, skal senda þér uppskriftirnar við fyrsta tækifæri...
Ragnheiður, ég fer með Guðrúnu á tónleikana....verum í bandi.
Èg er sko ekki madur med mønnum, hef aldrei hugmynd um hvada tònlistarmenn thù ert ad tala um elskan...èg held ad èg thurfi ad gerast menningarlegri...fara ì leikhùs...og gerast grùpppìa eins og thù baby....:=)
kyss, bumbulina
Ég er EKKI grúppía takk fyrir!
Grúppíur eru ekki kúl :)
Þær eru yfirleitt bara með eina hljómsveit á heilanum og það eru svona bönd einsog Skítamórall, Í svörtum fötum og Á móti sól, með fullri virðingu fyrir þeim.
Ég er bara aðdáandi góðrar tónlistar elskan....þarf ekkert að hössla hljómsveitina sem slíka heh...
Snoop Dogg is the beeesst!!
Tónleikarnir voru geggjaðir!
Ég, Sigurgeir og Guddy skemmtum okkur svooo vel...
Skrifa ummæli
<< Home