Í dag eru 10 ár liðin frá fjöldamorðunum í Srebrenica, þar sem serbneskar hersveitir myrtu átta þúsund múslimska karlmenn og drengi.
Konur og börn voru einnig myrt, þeim nauðgað og eða misþyrmt illilega.
Fjöldamorðin eru þau mestu sem framin hafa verið í Evrópu frá lokum seinni heimstyrjaldar.
Minningarathöfn er haldin í Srebrenica í dag og búist við tugum þúsunda gesta.
Ég hef lesið bækur um þessa hræðilegu atburði og horft á heimildamyndir sem hafa snert mig verulega.
Stríð eru hræðileg! Hvar og hvenær sem er!!
Það er ekkert sem réttlætir morð á saklausu fólki.
Ég sendi ættingjum fórnarlambanna mínar dýpstu samúðarkveðjur....
Við skulum vera glöð í hjartanu yfir því að búa á landi þar sem ekki geisir stríð.
Við skulum vera glöð yfir því að vera heilbrigð og eiga fjölskyldu og vini sem eru heil á húfi.
Við skulum vera glöð afþví að lífið er alltof stutt til þess að eyða tíma og orku í neikvæðar hugsanir.
Gleðjumst yfir litlu hlutunum jafnt sem þeim stóru.
Verum umhyggjusöm....
Ást og friður, Sunna Dís

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home